Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Side 19
N. Kv.
C. Krause:
Dætur frumskógarins.
Saga frá Mexíko. Guðmundur Frímann þýddi.
(Framhald).
Þeir höfðu aðeins farið stuttan spöl,
Þegar Zurdo byrjaði að barma sér sáran.
Nann komst til meðvitundar og starði
skelfdum augum á Gomez.
),Vesalingurinn!“ sagði Gomez. „Þessir
kölvuðu rauðskinnar hafa leikið þig grátt.
við höfum þegar endurgoldið þeim að
u°kkru og sent tvo af böðlum þínum til
heljar“.
„Djöfuls kvalir!“ stundi Zurdo. „Það er
eins og kynntur sé hægur eldur á höfði
ltllnu, og þorstinn er hræðilegur.
„Gefðu honum að drekka“, mælti
ailderas og rétti Gomez vínflösku, sem
^erið hafði í hnakktösku Don Jaime.
onaez lét nokkra dropa drjúpa á varir
lns særða manns og lofaði honum síðan
að súpa á flöskunni.
„Gefðu mér meira“, mælti hann, þegar
°mez ætlaði að taka af honum flöskuna.
„Ekki fyrr en þú hefir gefið okkur nán-
UPP^ýsingar um það, sem við hefir bor-
> mælti Banderas.
”SPyrjið þá!“
„Hefir þú séð fleiri indíána í skóginum
en þessa þrjá, sem réðust á þig?“
„Skógurinn er fullur af þeim. Flýtið
^Ur á brott héðan, annars verðið þið
Svarðflettir eins og eg“.
Handeras náfölnaði.
. ”^a er hacíendan nú þegar umkringd af
moíánum?11
„Vafalaust. Sennilega hafa rauðskinn-
lr S«rt tilraun til árásar“.
„Hvernig komst þú hingað?“ spurði
Gomez, en hershöfðinginn bætti við: „Og
hvernig stendur á blóðbaðinu í Kirkju-
hellinum?"
„Við Santuscho sóttum lík Don Rodri-
ques þangað, sem við höfðum falið það,
og fluttum það á ösnu til Kirkjuhellisins,
eins og ákveðið var. Sex apacha-indíánar
biðu okkar þar. Þrumuveðrið var þá skoll-
ið á, og við bjarmann af eldingunum sá eg,
að Santuscho gaf indíánunum merki á
laun, en þegar hann sá, að eg hafði veitt
því eftirtekt, réðist hann á mig, setti rýt-
ing fyrir brjóst mér og mælti ógnandi:
„Annað hvort þegir þú, eða þér er dauð-
inn vís“.
„Um hvað á eg að þegja?“ spurði eg.
„í nótt verð ég frjáls maður. í nótt
verður yfirdrottnun hvítra manna í þess-
um hluta landsins lokið. Kynbornir
apacha-indíánar, sem átt hafa landið frá
ómunatíð, munu hrinda af sér oki yfir-
gangs og þrælkunar yfir hinum fornu
veiðilendum sínum. Allir hvítir menn
skulu verða brytjaðir niður. Engum verð-
ur hlíft. íbúa hacíendunnar bíða sömu ör-
lög. Gomez og Banderas, sem hingað koma
í nótt, verða fyrstu fórnardýr á blótstalli
hefndarinnar. Þú einn átt þess kost að
halda lífi, svo fremi að þú gangir í lið með
okkur“. Eg átti ekki annars úrkosta og
svaraði þess vegna: „Eg geng að því“.
„Ertu viðbúinn að sverja okkur hollustu-
eiða við guð krossins?“ — Er eg hafði gert
það, fóru þeir með mig inn í hellinn. Við
9