Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 20

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 20
(i6 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. endann á göngum þeim, sem liggja inn í Gimsteinadalinn, bjuggum við um okkur og biðum þess, sem verða vildi. Allt í einu heyrðum við dimmt hljóð innan úr göng- unum. Indíánarnir bjuggust þegar til varn- ar og einn þeirra dró hníf úr slíðrum.og hvarf inn í göngin. Andartaki síðar heyrð- um við eitthvað detta þar inni, en síðan ekkert. Það er ekki að orðlengja það, að þeir félagar — sjö að tölu —r'hurfu hver af öðrum inn í görigin og komu ekki aftur. Þegar sá síðasti, Santuscho, var farinn, heyrði eg sagt þrumandi röddu, svo undir tók í hellishvelfingunni: „Allir sjö“. Lam- aður af ofboðslegri skelfingu þreif eg tjöru- kyndil og hentist út úr hellinum. Þegar eg kom út, fleygði eg kyndlinum frá mér og tók á rás út á grassléttuna. Óttinn við, að Blóðsugan kynni að vera á hælum mér, rak mig áfram, þangað til eg náði frumskógin- um. Eg var þó aðeins skammt kominn inn í hann, þegar eg heyrði mannamál rétt hjá mér. Mér varð strax ljóst, að indíánar voru þar á ferð, og minntist þess, sem Santuscho hafði sagt mér um áform Apacha-indíán- anna, að þeir hefðu hafið styrjöld gegn hvítum mönnum í þessum héruðum lands- ins. Eg gerði tilraun til að komast undan, en varð þess strax var, að eg var umkringd- ur. Mér var engrar undankomu auðið. Þrír risavaxnir indíánar ruddust fram úr skóg- inum, gripu mig höndum og svarðflettu mig, án þess eg gæti borið hönd fyrir höfuð mér til varnar. Hvað síðar gerist vitið þið“. Zurdo var erfitt um mál. Hann hafði sýnilega þegar fengið mikinn sótthita og Gomez reyndi að væta varir hans annað slagið, þótt geyst væri farið. Nú mátti greinilega heyra niðinn í Coloradofljótinu úr nokkrum fjarska. Jarðvegurinn varð stöðugt gljúpari og gljúpari og skógurinn þéttari. Og að lokum varð lágskógurinn svo ógreiðfær, að þeir urðu að ryðja sér braut með sverðum sínum. Þessi hluti frumskógarins virtist tilval- inn til launsátra og árása, enda bar svipur þeirra félaga þess órækan vott, að þeir hræddust umhverfið. Ótti þeirra var held- ur ekki ástæðulaus, því að skammt á eftir þeim fór hópur indíána undir leiðsögn þess félaga síns, er sloppið hafði úr hönd- um Gomezar og hershöfðingjans, er þeim tókst að frelsa Zurdo undan böðlum sín- um. Meðfæddur hæfileiki indíánanna til að rekja spor, og brotnar og afhöggnar greinar meðfram slóð flóttarriannanna,- gerði eftirreiðina tiltölulega auðvelda. Þegar þeir félagar komu að fljótinu, hafði dregið mjög saman með þeim og indíánunum. „Hvað er nú til ráðs?“ mælti Banderas og horfði út yfir skolgráar öldur fljótsins. „Við komumst aldrei landleiðina til haciendunnar. Við verðum að ríða upp með fljótinu í þeirri von, að við finnum einhvern af bátum þeim, sem Don Rodri- quez á hér víðs vegar meðfram fljótinu. A þann hátt verðum við að reyna að kom- ast undan“. „Við ættum að stugga hestunum heim á leið. Ef indíánar eru á hnotskógi eftir okkur, tekst okkur ef til vill að afvegaleiða þá, og gefst okkur þá sjálfum rýmri tímí til undankomu". „En Zurdo getur ekki gengið“, mæltí Gomez og sneri sér að Zurdo, sem bar sig aumlega. „Það er leitt“, svaraði Banderas og hnykklaði brýrnar. „Þei, þei! Hvað var þetta?“ Lágt ugluvæl rauf sógarþögnina, og andartaki síðar heyrðist því svarað með sams konar væli nokkru fjær. Þessi hljóð hefðu ekki vakið grunsemd nokkurs þess manns, sem ókunnur var leyndarmálum frumskóganna, en Gomez, sem var skilgetinn sonur þeirra, vissi á ölltf betri skil og þekkti þar þegar hljóðmerki indiánanna.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.