Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 28

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 28
74 DÆTUR FRUMSKÓGARINS N. Kv. Ruben gekk rakleitt að trénu, en rak upp lágt undrunaróp, þegar hann sá, að líkið var horfið. „Þorpararnir hafa nú þegar tekið það og flutt það í Kirkjuhellinn“, tautaði hann. Hann lagði lík konunnar inn í tréið og huldi það pílviðarkvistum. „Hvíldu hér“, mælti hann, „þar sem hvílustaður eiginmanns þíns var fyrir stundu síðan. Eg mun gera allt, sem í mínu valdi stendur, til þess að þú fáir að síðustu Iegstað við hlið þess manns, er elskaði þig svo óendanlega heitt“. . Að svo mæltu hélt hann sömu leið til baka, niður að Coloradofljótinu. Báturinn var kyrr á sama stað. Umferðasalinn tók hundinn með sér og steig út í bátinn. Fangalínuna tók hann til 'sín, ýtti bátnum frá landi og settist undir árar. Meðan þessu fór fram, hafði myrk þrumuský dregið upp á himininn. Snöggir vindbyljir ýfðu vatnið, og gjálpið í öldum fljótsins varð háværara og háværara. „Við fáum versta veður, félagi“, mælti hann við Kosta, sem sperrti eyrun og skimaði flóttalega út yfir fljótið. Eftir að Ruben hafði róið langa stund upp fljótið, móti öldu og straumi, lagði hann bátnum að ströndinni, þar sem hún var mjög klettótt og eyðileg. Skuggaleg hrikabjörg með gjám og sprungum, risu þverhnípt upp frá fljótsbakkanum. Ein gjáin náði alveg frá bakkanum og svo langt sem séð varð inn á milli hamranna. í mynni hennar steig Ruben í land ásamt hundinum. Bátinn dró hann upp á klettana og inn í gjána. I skúta, annars vegar í gjánni, kom hann honum fyrir, þar sem hann varð ekki séður frá fljótinu. Síðan hélt hann með gætni för sinni áfram inn í gjána. Nýfundnalandshundur- inn hljóp snuðrandi á undan honum og hafði gætur á öllu. Óveðrið var nú skollið á og nætur- myrkrið breiddist óðfluga yfir þetta trölla- lega umhverfi. Klettar og björg tóku á sig hinar geigvænlegustu kynjamyndir. — Þrumurnar dundu í sífellu og eldinga- bjarminn varpaði öðru hvoru uggvænu skini yfir gjána. „Eg verð að komast í Kirkjuhellinn“, tautaði Ruben við sjálfan sig. „Að vísu er sagt, að Blóðsugan sé á ferli þar um slóðir, en vonandi gerir hún mér ekki neitt“. Hann brosti kynlega við síðustu orðin. Allt í einu var eins og hundurinn yrði var við eitthvað grunsamlegt, því að hann kom til húsbónda síns og flaðraði hræðslu- lega upp um hann, án þess þó að láta noíck- urt hljóð til sín heyrast. Ruben stanzaði og rýndi inn í myrkrið, en hann sá ekki neitt, nema skuggalega lögun hamranna á báðar hendur. Rétt í því, að hann ætlaði að halda af stað, féll stórt bjarg ofan úr klettunum niður við fætur hans. Hann hrökk skelfdur til baka og hnipraði sig upp að hamraveggnum.. I sömu andrá spruttu nokkrir Apacha- indíánar fram úr fylgsni sínu. Ráku þeir upp heróp mikið og veifuðu hinum ægi- legu tomahawöxum sínum. Umferðasalinn virtist ekki hræðast hina óvæntu mótstöðumenn. Hann stóð kyrr í sömu sporum og kallaði til þeirra á apachamáli: „Kyrrir!“ Indíánarnir, sem voru á að gizka þrjá- tíu, hikuðu andartak, en þá æpti einn þeirra: „Hvers vegna hikið þið? Svarðflettum þennan hvíta hund!“ Hópurinn færði sig nær, en Ruben gekk á móti þeim og mælti: „Eg er Ruben. úrasalinn. Eg hefi bréf frá höfðingja yðar, Svarta Fálka, sem heimilar mér rétt til að ferðast óáreittum hvar sem er meðal þjóðflokks yðar“. Rauðskinriarnir staðnæmdust. „Þú ert þá ékki Járnhönd, maðurinn með eldpípuna?"

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.