Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Side 30

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Side 30
N. Kv. D. H. Lawrence: Rugguhesturinn. Það var einu sinni falleg kona, sem öðl- ast hafði í vöggugjöf allt, sem til kosta er talið, og þó var hún alltaf óheppin. Hún gifti sig af ást, og ástin varð að dufti. Hún eignaðist snotur börn, og þó fannst henni, að þeim hefði verið þröngvað upp á sig, og hún gat ekki elskað þau. Þau horfðu kuldalega á hana, eins og þau sæu ein- hverja galla á henni. Og skyndilega fannst henni, að hún verða að fela einhverja galla á sjálfri sér. En hvað það var, sem hún varð að fela, vissi hún ekki. Þegar börnin voru einhversstaðar nærri, fannst henni innstu hjartarætur sínar dragast saman og verða harðar sem steinn. Þetta varð til þess, að hún á sinn hátt sýndi börnunum enn meiri blíðu og umhyggjusemi, eins og henni þætti ákaflega vænt um þau. Eng- inn nema hún vissi að innst í hjarta henn- ar var harður, tilfinningarlaus steinn, sem ekki gat borið ást til neins. Allir aðrir sögðu um hana: „Hún er svo einstaklega góð móðir. Henni þykir svo vænt um börn- in sín“. Enginn nema hún og börnin vissu, að þannig var það ekki. Þau lásu það í augum hvers annars. Börnin voru einn drengur og tvær stúlkur. Þau bjuggu í skemmtilegu húsi, með garði fyrir framan. Þau höfðu þag- mælskt þjónustufólk, og þeim fannst þau vera hátt hafin yfir alla nágrannana. Þó að þau lifðu fyrirmannlegu lífi, fundu þau, að einhver kvíði lá alltaf í loft- inu á heimilinu. Það var aldrei nóg af pen- ingum. Móðir þeirra hafði litlar tekjur, og faðir þeirra hafði litlar tekjur, og það hrökk hvergi nærri til að lifa því lífi, sem þau lifðu. Faðirinn var á einhverri skrif- stofu inni í borginni. Þó að starf hans hefði mikla framtíðarmöguleika, urðu þessir framtíðarmöguleikar aldrei að veruleika. Það var alltaf ,þessi nagandi meðvitund um skort á peningum, þrátt fyrir fyrir- mannlega lifnaðarháttu. Að lokum sagði móðirin: „Eg ætla að vita hvort eg get ekki gert eitthvað". En hún vissi ekki hvernig hún átti að byrja. Hún braut heilann, reyndi hitt og þetta, en gat ekki fundið neitt, sem var arðvænlegt. Getuleysið markaði djúpar rákir í andlit hennar. Börnin hennar voru farin að stálp- ast, bráðum þyrftu þau að fara að ganga í skóla. Þau urðu að fá meiri peninga. Lífs- venjur föðursins voru dýrar, og honum virtist aldrei ætla að takast að gera neitt, sem gagn væri í. Og móðurinni, sem hafði sterka trú á sjálfri sér tókst á engan hátt betur, og lífsvenjur hennar voru að engu ódýrari. Að lokum fór þessi setning eins og draugur um allt húsið: Það verður að út- vega meiri peninga! Það verður að útve&a meiri peninga! Börnin heyrðu hana alltaf og allstaðar, þó að enginn segði hana upp- hátt. Þau heyrðu hana á jólunum, þegar barnaherbergið var fullt af skrautlegum og dýrum leikföngum. A bak við gljáandi rugguhestinn, á bak við nýtízku brúðuhús, hvíslaði rödd: Það verður að útvega meiri peninga! Það verður að útvega meiri pen-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.