Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Page 34

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Page 34
80 RU GGUHESTURINN N. Kv. ákvað að fara með frænda sinn á Lincoln- veðreiðarnar. ..Jæja, góði“, sagði hann. „Eg veðja tutt- ugu pundum á Mirza, og svo skal eg veðja fimm pundum fyrir þig, á hvaða hest sem þú vilt. Hvaða hest viltu?“ „Daffodil, frændi". . „Nei, ekki fimm pundum“. „Eg mundi g«ra það, ef eg ætti þau“, sagði Paul. „Jæja! Jæja! Eins og þú vilt! Fimm fyrir mig og fimm fyrir þig!“ Paul hafði aldrei verið á veðreiðum fyrr, og augu hans loguðu af ákafa. Hann herpti saman varirnar af eftirvæntingu. Frakki, sem stóð rétt fyrir framan þá, hafði veðjað á Lancelot. Hann baðaði út öllum öngum og hrópaði í æsingu: „Lancelot! Lancelot!“ með frönsku-hreim í röddinni. Daffodil varð fyrstur, Lancelot annar og Mirza þriðji. Paul var rjóður í framan og augun ljómuðu, en þó var hann merki- lega rólegur. Frændi hans færði honum fimm fimm punda seðla: Fjórir á móti ein- um. „Hvað á eg að gera við þá þessa!“ hróp- aði hann. „Eg býst við, að eg eigi fimmtán hundruð núna, og tuttugu til vara, og svo þessi tuttugu“. Oscar frændi horfi á hann stundarkorn. „Heyrðu mig, Paul“, sagði hann. „Þér er ekki alvara með þessi fimmtán hundruð pund, og þennan félagsskap ykkar Bass- etts, er það?“ „Jú“, sagði Paul. „En þú mátt engum segja það, frændi. Þú verður að lofa því upp á æru og trú!“ „Upp á æru og trú, drengur minn; en eg þarf að tala við Bassett. „Ef þú vilt, frændi, þá máttu ganga í fé- lag við okkur Bassett. En þú yrðir að lofa því upp á æru og trú, að segja ekki nokkr- um lifandi manni frá því. Við Bassett er- um heppnir, og það hlýtur að vera heppn- in líka, af því að þú gafst mér tíu skilding- ana, sem eg vann fyrst á. . . . “ Oscar frændi fór með Paul og Bassett inn í Richmond Park dag nokkurn síðdeg- is, og þar töluðu þeir saman. „Þannig er mál með vexti“, sagði Bass- ett, „að Paul var alltaf að biðja mig að segja sér af veðreiðum, heilar sögur, þér skiljið. Og hann vildi alltaf fá að vita, hvort eg hefði unnið eða tapað. Það er hér um bil eitt ár síðan, að eg veðjaði fyrir hann fimm skildingum á Blush og Dawn, og við töpuðum. En það breyttist, þegar hann fékk tíu skildingana hjá yður; við veðjuðum þeim á Singhalese. Síðan höfurn. við að heita má alltaf unnið. Er það ekki rétt hjá mér Paul?“ „Það er allt í lagi, þegar við erum vissir“, sagði Paul. „Það er þegar við erum ekki al' veg vissir, sem við töpum. „Já — en þá erum við varkárir“, sagði Bassett. „En hvenær eruð þið vissir?“ sagði Os' car frændi brosandi. „Það er Paul“, sagði Bassett með dular' fullri og hátíðlegri röddu. „Það er eins og hann fái það ofan af himnum. Eins og t. d- Daffodil á Lincolnsveðreiðunum núna- Það var eins öruggt og amen í kirkju“. „Veðjaðir þú nokkru á Daffodil?* spurði Oscar Cresswell. „Já, eg veðjaði fyrir mig“. „Og frændi minn?“ Bassett steinþagði og leit á Paul. „Eg vann tólf hundruð, var það ekld Bassett. Eg sagði frænda, að eg ætlaði veðjá þrjú hundruð á Daffodil“. „Það er rétt“, sagði Bassett og kinkað1 kolli. „En hvar eru peningarnir?" spurði 0S' car frændi. „Eg geymi þá í læstri hirzlu, á öruggulfl stað. Paul getur fengið þá hvenær seh1 hann vill“. „Hvað, fimmtán hundruð pund?“

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.