Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Síða 46
92 N.-Kv- FRÁ AUSTFJÖRÐUM TIL EYRARBAKKA vissulega farast.“ Samferðamenn hennar reyndu að hughreysta hana með því, að skýin væru sandbólstrar og undir þeim væri ekki verra að vera en þar sem þau væru nú. Þegar þau væru komin spölkorn áleiðis, myndu þau líta sams konar sýn að baki og nú væri framundan. í rökkrinu fóru þau framhjá hæð, þar sem krossmark hafði verið reist. Þetta var staðurinn, þar sem Reynistaðarbræður urðu úti. Raunasaga þeirra og líkastuldur- inn rifjaðist nú upp fyrir þeim, og voru þær minningar allt annað en hvetjandi fyrir ferðafólkið eins og nú stóð á. Þau héldu áfram ferðinni framhjá hæðinni, en undir kvöldið tók storminn að lægja og síðla kvölds náðu þau í hagablett. Frú Th. var þá svo örmagna af þreytu og lasleika, að hún fleygði sér niður í döggvott grasið án þess að sinna nokkrum hlut. Brátt var tjaldið reist og henni þar búin hvíla. Hún sinnti börnum sínum ekki hið minnsta en þjáðist af krampakenndum flogum. I ör- væntingu sinni sagði hún við mann sinn: „Það bætist bráðlega annar kross við hér á fjöllunum.“ En að lokum sofnaði hún. Þegar þau vöknuðu morguninn eftir, var komin þoka. Hún var svo svört, að fylgd- armennirnir treystu sér ekki til að hafa upp á hestunum, og því síður að nokkurt umtalsmál gæti verið um framhald ferðar- innar, þótt hestarnir fyndust. Frúin varð þessu fegin, því að fyrir bragðið fékk hún að hvílá sig lengur. Sofnaði hún því á ný. Þegar hún vaknaði á ný var þokunni tekið að létta. Neytti hún nú dálítils af bygg- súpu, en kartöflur, sem þau höfðu haft með sér, voru nú gaddfreðnar. Þau lögðu af stað nokkru fyrir hádegi. Þokunni var þá létt með öllu og veðrið hið bezta. Hresstist frú Th. nú brátt, þótt nokkuð væri hún enn máttfarin. Nokkru eftir hádegi sáu þau f járhóp og tvo menn, sem voru að hvannarótagreftri skömmu síðar, en ekki náðu þau tali af þeim, því að árgil var á milli. En enginn getur gert sér í hugarlund gleði mína yfir því að sjá aftur menn, segir frú Th. Þeim gekk greið- lega yfir Hvítá, sem þau þó höfðu óttazt að yrði þeim farartálmi, því að hún tefur oft ferðir manna, sem að henni koma eftir þriggja daga ferð um öræfin og eru þá stundum lítt nestaðir, svo að þeim er nauð- ugur einn kostur að brjótast yfir ána, þótt illfær sé. I vík við ána var maður í bát að veiðum, og keyptu þau að hónum nýveiddan lax. Síðan gekk þeim greiðlega niður í Biskups- tungur. Um kvöldið náðu þau til bæjar þess, sem þau höfðu ætlað sér að gista á, og var þeim þar vel tekið. Voru þau nú öll hin hressustu og höfðu börnin þolað ferða- volk þetta ágætlega. Næsta dag héldu þau áfram og komu seint að kveldi til Eyrarbakka. Lætur frú Th. þess getið, að þau hafi á leiðinni séð mekkina frá Geysi, en þótt hún vissi að •hann væri meðaLmestu náttúruundra á jörðunni, og hana hefði oft langað til að sjá hann, hefði hún með engu móti getað fengið af sér að leggja þá lVkkju á leið sína, og gera þannig hina örðugu ferð enn lengri- Y Hún þráði einnig mjög að sjá Skúla son sinn, sem þá dvaldi á Eyrarbakka, og rak það einnig eftir henni að komast áfram. Þegar þau loks í myrkri um kveldið komu til Eyrarbakka, höfðu þau verið 17 daga á ferðalagi auk dvalarinnar á Akur- eyri, og var þar með hinni löngu og örðugU ferð lokið. Steindór Steindórsson frá Hlöðum þýddi- /

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.