Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 48

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1942, Qupperneq 48
94 BÓKMENNTIR N. Kv. það, að þau áhrif, sem hún hefir, eru til góðs eins. Þýðingin virðist vel af hendi leyst og málið látlaust. Jón Benediktsson prentari: Voiboði íslenzkrar æsku. Akureyri 1941. Fyrir nokkrum dögum barst þessi bækl- ingur mér í hendur. Er hann framhald fyrri ritlinga sama höfundar um íþróttir og í- þróttamál, en einkum þó íþróttahús Akur- eyrar. Það má með sanni segja, að hverja skoðun, sem menn kynnu að hafa á þeim málum yfirleitt, þá er ékki unnt annað en dást að þeim eldmóði og því kappi, sem JÓN EIRÍKSSON: Kvæði. ÉG ELSKA ÞIG LAND MITT. Ort 1939. Ég elska þig, land mitt, með fossa í f jöllum, með fífil og sóley um engjar og tún, með fénað á beit upp á hólum og hjöllum, með hoppandi læki af smákletta brún, með kvöldhúmið milda og bláhiminboga, með blikandi stjörnur, sem lýsa á grund, með hafflötinn bjarta, með víkur og voga og vermandi sól yfir eyjar og sund. Ég elska þig, land mitt, með gljúfrum og giljum, með gnýpum og jöklum við sjóndeildar- hring, með laxa og silunga hoppandi í hyljum, með hæðir og brekkur og smáberjalyng. Og heiðvötnin bláu með svani á sundi og smávaxna unga við brjóst sitt og hlið, með gullblómin fögru í laufgrænum lundi, með lágnættisþoku og vorfugla klið. höfundurinn leggur á að boða skoðun sína og hvetja menn til fylgis við hana. Það er næstum því fágætt, að fyrirhitta slíkt í svo ríkulegum mæli og fyrir það er bæklingur þessi ekki sízt merkilegur. A öld efnis- hyggju og hagsmunastreitu eru þeir menn fáir, sem berjast fyrir hugsjónum. Og nú er íþróttahúsið að rísa upp, og er vonandi, að bæði Jóni og öðrum forvígismönnum þess verði að von sinni og trú um heilla- vænleg áhrif þess. En bæklingurinn er líka metfé fyrir bókasafnara, því að frágangur hans er með þeim ágætum að fáséð er. Akureyri, 30 marz 1942. Steindár Steindórsson írá Hlöðum. Ég elska þig vorkvöld og litfögur lóa með ljóðin þín fögru og munaðarblíð, þá smalar á kvöldin á hjarðirnar hóa svo hvellandi bergmálið ómar um hlíð, með hólma og tjarnir sem endur og æður í einingu búa með smábörnin sín og hjúkra þeim blítt eins og mjúklyndar mæður, þá miðnætursólin á háfjöllin skín. Ég elska þig land mitt í fannhvítum feld1 með frosti og hríðar um hæðir og mó, með alstirndan himin á kyrrlátu kveldi) og kraftmiklar öldur, er rísa á sjó, , með norðurljós leiftrandi um loftsali blaa og lýsandi mána yfir snæþakta jörð, með f jöllin og jöklana hvíta og háa og hrímþakta dranga við íslagðan fjörð. Þú ert móðir mín kæra og fóstra mín fornði sem færðir mér lífið og veittir mér þrótt' Á nóttum og kvöldum um miðdag og morgu3 máttinn og styrkinn til þín hef ég sótt.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.