Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Qupperneq 20

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Qupperneq 20
2 KÆRLEIKUR, LÍF OG STARF N.Kv. arjátningar og trúarlærdómur eru hið ófull- komna, en kærleikurinn og sannleikurinn hið fullkomna, kenningar og skoðanir verða hjóm eitt og reykur, þegar kærleikurinn og sannleikurinn eru orðnir að mannlegri, fé- lagslegri breytni. Þegar trúartilfinningin er í sannléika tilfinning fyrir nálægð og hjálp- ræði Guðs, þá verður þessi tilfinning ekki skilgreind, ekki metin eða vegin af mann- legu hyggjuviti, því lífblær hennar er órök- rænn. Þegar lífsvitund mannsins er vitund um algæzku Guðs og kærleik Krists, þá er hún helg og háleit, og friðhelg fyrir fræði- legri gagnrýni. Það er mikið fávíslegt, þegar menn með ákveðnar, en sérstæðar hugmyndir og skoð- anir þykjast geta sýnt fram á, að trúartil- finningar, trúarþel og vitundarsamband ann- ara við æðri tilveru sé ókristilegt og jafn- vel hættulegt. Bollaleggingar um persónu- legas.ta og innilegasta trúarlíf náungans og ádeilur á Guðstrú er ævinlega fjarstæða. Með öðrum orðurn, þegar maðurinn elskar og tilbiður Guð sinn í anda og sannleika, þá er trúarvitund hans, þetta vitundarástand hafið yfir alla gagnrýni, allar kenningar, skoðanir og kennisetningar, og það er þetta háleita vitundarástand mannsins, sem gefur möguleika til þess, að máttarverk og krafta- verk gerast. Þetta hugarástand eða vitund- arástand reyna menn yfirleitt ekki að rök- ræða, enda ógerlegt að gera fulla grein fyr- ir því, það er einstaklingsins helgasti dóm- ur. Að þessu á trúin, trúarlífið augljóslega að stefna. Að vera vitundarsamband, kær- leikur, líf og starf. „Vér lifum í trú, en ekki í skoðun,“ sagði Páll forðum. Hér er kjarni málsins falinn í orðunum „vér lifum“ og merkir raunverulega: vér lifum í samfélagi við guð, vér lifum í breytni, sem andinn lífgar. Vér höldum boðorð. Vér gerum vilja guðs. 011 trúarleg vakning er fólgin í meira andlegu starfi — betra starfi, fullkomnara lífi — þessu megum við aldrei gleyma. Og þetta verður þegar menn elska hver annan. En boðorð Krists mannkyninu til handa var þetta: Elskið hver annan og elskið guð, það er grundvöllur mannlífsins. Guðstrú manns- ins er algjörlega persónulegt einkamál og jafnframt helgasta einkamál hans. Það ligg- ur því í hlutarins eðli, að menn hafa engan rétt til að fara höndum um þetta hjartans mál náunga síns, né ganga um þennan helga reit hans, sízt af öllu á óhreinum skóm. Hitt er annað mál, ef einhverjir leita eft- ir eða spyrjast fyrir um hugsjónir, skoðan- ir og reynslu á sviði trúar og írúmála, í þeirri von eða í trausti þess, að geta fengið styrk eða leiðsögn, eða fengið lausn frá þrautum og þjáningu, þá er einboðið að taka honum báðum höndum og veita þá að- stoð, sem geta og kraftar leyfa. En einu megum við ekki gleyma í því samhandi, að þeir, sem leita sannleikans í ríki andans, hversu þjáðir sem þeir kunna að vera, hafa líka alltaf eitthvað að gefa, og oft mikið. Trúhneigður maður er alltaf að einhverju leyti á .réttri leið og alltaf öðru hvoru að leita að andlegum sannindum, hvað þá sann- trúaður maður. Og þótt viljinn góði sé veik- ur og kraftarnir smáir til framþróunarinn- ar, seinagangur sé á ferðalaginu og fundur- inn lítill í hverri ferð, er óskynsamlegt og illa gert af þeim, sem vissir þykjast í sinni sök, lengra þykjast komnir og betur vita, að dæma þá hart og dæma þá úr leik. 011 er- um við upp til hópa seld undir þá sök, að eiga bara veikan vilja og takmarkað þrek, einkum þegar þau viðfangsefni liggja fyrir, að sá í vermireit kærleikans og klæða fjall sannleikans. Við getum gjarnan látið trúar- skoðanir okkar í ljós af hógværð og ein- lægni, ef einhverjir vilja á okkur hlusta og

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.