Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Síða 56

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Síða 56
frá Menntamálaráðuneytinu Menntamálaráðuneytið vill hér með brýna fyrir fræðsluráðum og skólanefndum, að nauðsynlegt er að auglýsa svo snemma að vorinu sem unnt er þær skólastjóra- og kennarastöður, sem lausar kunna að vera, þó þannig, að prófum í Kennaraskóla íslands sé lokið nokkru áður en umsóknarfrestur rennur út, svo að hinum nýju kennurum gefist kostur á að sækja um störfin. Sé um íþróttakennarastöður að ræða, skal miða umsóknarfrest við, að prófum í íþróttakennaraskóla íslands sé lokið áður en umsóknarfrestur rennur út. Ber að senda fræðslumálastjóra sem allra fyrst á árinu upplýsingar um, hvaða stöður á að auglýsa og senda honum síðan strax að umsóknarfresti liðnum tillögu aðila um setningu í störfin. Einnig skal svo fljótt sem unnt er senda fræðslumálastjóra tillögur um skipun þeim til handa, sem gegnt hafa skólastjóra- og kennarastöðum sem settir tilskilinn tíma, en skipa á. Telur ráðuneytið nauðsyn bera til, að þessi háttur verði upp tekinn, til þess að komast hjá þeim óþægindum, er því fylgja fyrir alla aðila, er slík mál berast fræðslumálastjóra og ráðuneyti eigi fyrr en í þann mund, er skólar eru að heíjast að haustinu, og væntir góðs samstarfs við alla aðila um að hraða afgieiðslu þessara mála. Til þess að tryggt sé, að þeir, sem um umsóknir eiga að fjalla fái strax í hendur nægilegar almennar upplýsingar um umsækjendur, hefur ráðuneytið látið gera sérstök umsóknareyðublöð, sem verða fáanleg hjá fræðslumálastjóra, skólanefndum og fræðsluráðum, og er þess vænzt, að kennarar noti þau eyðublöð undir umsóknir sínar. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ. GYLFI Þ. GÍSLASON. Birgir Thorlacius.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.