Tímarit þjóðfélagsins - 01.01.1916, Blaðsíða 24
24
uðu konungsboði, til þess að taka sér túr og fara á fund
hans Majestet kongsins af Danmörku og íslandi. Verður
það 1 Sjálfstæðismaður og 1 Heimastjórnarmaður.
Þá munjhinn elskuverðugi, hans háheit kongurinn, mæla
til þeirra þessu líkt:
Ennþá eruð þér hingað komin, elskuverðugu börn föður
yðar. Nú kemur mér ekki í þanka annað þénanlegra til for-
einingar hinu æruverðuga Alþingi, en að láta ykkur báða
stjórna landinu ykkar, þar til einhver stórslegin óeining kem-
ur í þingið, og flokkarnir ruglast, svo lukkist að skifta meiri
hluta og minni hluta, og annarhvor ykkar komist í tignina.
Svo fara þeir heim og sofa ekki saman á Ieiðinni.
Þingtíminn verður framlengdur til veturnátta. En áður en
þingið slúttar skeður til lukku uppgangur hjá öðrum flokkn-
um en niðurgangur hjá hinum, og þannig feldur dómur um
það hvor skuli verða ráðherra. Það veit ég hver verður, en
má til að þegja.
Ég vona að allir skilji, að ég má ei foragta hin yfirgengi-
Iegu og ónáttúrlegu magtarvöld, með því að reynast .þeim
óforþénað ótrúr með málæði, sem ég þó hefi löngun til
sem von er.
Ritstj.
Ciikynning.
Ég hefi tekið að mér að kosta útgáfu þessa
bæklings, fyrir þá sök að handritaninn eða ritstjór-
inn hafði eigi ástæður til þess. Útgáfan var hon-
um áhugamál, er hann álítur »að þjóðin muni þar
af pragtuglega reglementerast«.
Framhaldi lofaði hann mér ef ég vildi.
Kostnaðarmaðurinn.
Prcntsmiðja Odds Björnssonar. Akureyrl.