Sumargjöf - 01.01.1908, Page 76
72
Sumargjöf.
að ná fuglinum. Fuglarnir eru veiddir í háf, rotaðir
eða snaraðir. Lundann veiða þeir að eins í háf, en
draga ekki ófleyga ungana út úr holunum á kofna-
goggum eins og víða gerist annarsstaðar, enda er sú
veiðiaðferð allharðneskjuleg. Æðarfugl er við eyjarn-
ar en litið um æðarvarp.
Rjúpur koma þar á vetrum og eru veiddar óspart.
Húsdýr eru þar, kýr, hestar, sauðfé, hundar,
kettir. Mýs eru á eyjunni en rottur engar.
Vestmanneyjar eru í hinurn rnesta uppgangi sem
stendur. Fólksfjöldi mun vera kringum lOOOoghef-
ir hann tvöfaldast á fáum árum. Húsum hefir fjölgað
mikið og mörg hús eru nú í smíðum. Skipastóll
hefir algerlega breytst á skömmum tíma. Gömlu
Vestmanneyjaskipin eru nálega horfln með öllu, nokk-
ur skip eru þar með færeyzku lagi, en fiskiveiðarnar
eru aðallega slundaðar á mótorbátum. Sem stendur
eiga eyjaskeggjar 40 mótorbáta, er gengið hafa til
fiskjar og fiskað mjög vel í vetur. Það er alkunnugt
að Vestmanneyingar eru hinir mestu sjómenn og sum-
ir hverjir ef til vill fulldjaríir og eflaust mábúastvið
að fiskiveiðunum fari fram með tímanum og eyjarn-
ar blómgist meir og meir.
Landbúnaður er þar ekki með jafn miklum
blóma sem sjávarútvegurinn. A eyjunum munu vera
um 70 kýr, 40 liestar og 1100 sauðfjár. Eftir því
sem fólksQöldi vex má telja liklegt að kúm fjölgi,
enda er þar nóg af góðu landi til að rækta. Hestar
hafa verið mest til skemtunar fyrrum, en nú erfarið
að brúka þá til aksturs og eflaust mun það ryðja sér
til rúms meir og meir og reiðhestum eða skemtihest-
um fækka.
Áburður er vel hirtur og honum safnað í stórar