Sumargjöf - 01.01.1908, Blaðsíða 77
Sumargjöf.
73
lokaðar forir, en áburð má drýgja með ýmsu móti
og nóg er þar til af þaranum sé hannhirtur. Kamar
er þar á hverjum bæ.
Mótak er ekkert á eyjunuin eins ogjarðlagið ber
með sér, þar er meira að segja engin mýri; þó er
ofurlítið svæði í Herjólfsdal vestur við sjóinn kallað
torfmýri. Eftir gróðri að dæma og rakaástandi jarð-
vegsins er þetta svæði i raun og veru engin mýri,
þvi þar var tómur valllendisgróður. Fyrrum var
þangskurður í eyjum og þangi brent, en nú munþví
vera hætt.
Eyjarnar munu efiaust eiga glæsilega framtíð fyr-
ir höndum og líklegt er að fólksfjöldi aukist þar meir
og meir og færi svo að þar kæmi upp góð höfn
mundi gildi eyjanna vaxa ósegjanlega mikið.
Það mun vera sökum hafnleysis að ferðamanna-
straumurinn fer fram hjá Vestmanneyjum, eða hafa
útlendingarnir ekki veitt því eftirtekt, hve eyjarnar
eru einkennilega fagrar? Eflaust mundi þeim þó
þykja gaman að fara á mótorbát fram með fugla-
björgunum og kringum eyna og róa inn í hellrana,
fara upp á Helgafell, Heimaklett, inn í Herjólfsdal o.
s. frv. Útsýni er og hið fegursta þegar bjart er veður.
Eyjafjöllin og Eyjafjallajökull blasa beint við. Fremur
ægilegt hlýtur þó að vera í eyjunum í vetrarstorm-
unum í stórbrimum þegar særokið þeytist yfir eyna.
Vestmanneyjar eru ein sýsla, eitt prestakall og
eitt læknishérað. Hér um bil allir eyjarskeggjar búa
i kaupstaðnum. Hann er allstór um sig, en húsum
er fremur óreglulega skipað og götur of mjóar. Hvert
hús liefir eigið nafn. Sýslumaðurinn býr t. a. m. að