Eimreiðin - 01.01.1952, Blaðsíða 43
Bernard Shaw ber að dyrum
Svo segja sum brezk blöð frá byrjun þessa árs, að George
Bernard Shaw hafi nýlega barið að dyrum hjá hinum fræga
miðli, Geraldine Cummins, aðallega til þess að verja erfða-
skrá sína fyrir ágengni enskrar hefðarkonu, lafði Astor, sem
gert hefur kröfu til nokkurs hluta þeirra miklu auðæfa, sem
Shaw lét eftir sig. Að vísu eru blöðin langt frá því að vera
sammála um, að sjálfur Shaw sé hér að verki. En eitt þeirra,
>»ReynoIds News“, skýrir svo frá atburðiun þessum:
Fundur var haldinn hjá ungfrú Geraldine Cummins í Chel-
sea rétt fyrir jólin, og notaði þá Shaw hönd ungfrúarinnar
tU þess að birta Bretum hugsanir sínar, meðal annars um
eftirlátna erfðaskrá. En þetta var í þriðja sinn sem Shaw
hafði notað hönd ungfrúarinnar síðan hann lézt fyrir rúmu
ári.
Geraldine Cummins er miðill, sem meðal annars skrifar
ósjálfrátt. Hún heldur því fram, að framliðinn andi Shaws
hafi stýrt hönd sinni á þessum fundi og svarað spurningum,
sem lagðar voru fyrir hann.
Shaw lézt í nóvember 1950 og trúði því, er hann lézt, að
Persónuleiki einstaklingsins lifði ekki áfram eftir dauðann,
heldur leystist upp í það, sem Shaw kallaði „líforku" og að
ódeili eiginda sinna og annarra færu í það eftir líkamsdauð-
ann að mynda og móta kjarna kynslóðanna á komandi
tímum.
Fyrstu hreyfingar pennans á pappírnum hjá Geraldine
Cummins þetta dezemberkvöld voru harla reikular, að mestu
punktar og strik. En brátt teiknaðist mynd af skeggjuðu
andliti á pappírnum, og undir myndina skrifaðist eftirfarandi