Eimreiðin - 01.01.1952, Síða 53
eimreiðin
VIÐ HITTUMST EFTIR 20 ÁR
41
Höfundurinn er ungur maður, fæddur í Waukegan, Illinois, árið 1920.
Eftir hann hafa áður komið út tvær bækur: Dark Carnival árið 1947 og The
hiartian Chronicles érið 1950. Ráðar bækurnar hafa fengið góða dóma í
Ameríku. Þetta er hluti úr nýrri bók, The Illustrated Man, sem kom út um
Páskana í fyrra.
Þegar fréttin varð kunn, þustu allir út úr kaffistofum og gisti-
húsum og horfðu til himins. Þeir skyggðu fyrir hvít augu með
svörtum höndum. Munnarnir voru hálfopnir af undrun. f ótal
stnáþorpum gerðist sami atburðurinn, svartir menn stóðu kyrrir
°g störðu til himins.
Hattie Johnson lét lok yfir pottinn, þurrkaði sér um hendurn-
ar og gekk með hægum skrefum úr eldhúsinu fram í anddyrið.
„Komdu, mamma, flýttu þér nú, annars sérðu ekkert." Þrir
litlir negrastrákar dönsuðu í garðinum og hrópuðu sig hása.
„Nú kem ég,“ sagði Hattie og opnaði dyrnar. „Hvar hafið þið
heyrt þessa frétt?“
„Hjá Jones, mamma. Þeir segja, að það sé að koma eldfluga, sú
fyrsta eftir 20 ár, með hvítan mann innanborðs.“
„Hvað er hvítur maður? Ég hef aldrei séð hvítan mann.
Hvernig lítur hvitur maður út?“
„Það muntu bráðum fá að sjá,“ mælti Hattie. „Vertu viss, þú
sérð það rétt strax.“
„Segðu okkur frá, mamma. Segðu okkur frá eins og þú hefur
svo oft áður sagt okkur frá.“
Hattie hleypti brúnum. „Hm. Það er svo langt síðan, ég var
smátelpa þá, það var árið 1965.“
„Segðu okkur sögu um hvíta manninn og hvíta fólkið hans,
ttiamma."
Hattie gekk út í garðinn og fór að horfa upp i himinblámann
®eð hvítum og léttum Marzskýjum. Langt í fjarska sáust Marz-
hæðirnar, loftið titraði í sólskininu. Loks sagði hún: „Jú, fyrst
°g fremst hafa þeir hvítar hendur.“
„Hvitar hendur.“ Strákarnir skellihlógu og hnipptu hver í
srinan.
„Og hvíta handleggi.“
„Hvita handleggi,“ veinuðu strákarnir.
„Og hvít andlit.“
„Hvít andlit. Er þetta satt?“