Eimreiðin - 01.01.1956, Blaðsíða 20
8
EIMREIÐIN
lienni, unz hann seldi hana núverandi eigendum um síðustu
áramót.
Eimreiðin hefur í tíð Sveins Sigurðssonar átt við að stríða
sívaxandi samkeppni, þó að fyrst hafi keyrt um þverbak í þvl
efni seinustu árin. Út hafa verið gefin fleiri og fleiri rit, seiu
liafa gert það óþarft, að Eimreiðin flytti greinar um ýmis þal1
efni, sem hún sinnti á fyrstu áratugum ævi sinnar, og a*'
mennum skemmtiritum hefur fjölgað mjög mikið, einkum
nú eftir styrjöldina miklu. Þá hefur og bókaútgáfa lands-
manna aukizt rnjög að vöxtum og fjölbreytni, og ofan á al'1
þetta bætist, að við þau mynda- og skemmtirit, sem hér voru
seld á Norðurlandamálum fyrir hina síðari heimsstyrjöld,
hefur bætzt fjöldi slíkra rita úr hinum enska heimi.
Frá því að Sveinn Sigurðsson tók við útgáfu og ritstjón1
Eimreiðarinnar, hafa ýmis íslenzk tímarit með líku snið1
gengið fyrir ætternisstapa. Iðunn, er naut gamalla og uýna
vinsælda, hrökk upp af fyrir meira en tveimur áratuguiu-
Vaka, sem að stóð hópur fyrirmanna í íslenzku menntalíf1’
lifði skamma stund, og ýmis önnur tímarit, sem voru með al'"
miklum myndar- og menningarbrag, hafa orðið að hastia
göngu sinni. En Eimreiðin hefur staðið af sér allt straufflkas1
í hinni meira og meira grugguðu elfur íslenzkrar útgáfustai I
semi — og virðist jafnvel ekki mórilla sorp- og glæparitau1111
geta gert henni erfitt um að fóta sig á hálum hellum almen11
ingsvinsældanna í þessu landi.
En þó að Eimreiðinni hafi enn sem komið er vegnað þaffl1
ig, að hún hafi lifað af hina mestu hættutíma, ein allra þeiria
tímarita, hérlendra, sem ekki eiga að bakhjarli voldug fél°o
og stuðning af opinberu fé, þá er það ekki fyrir þær sakir, a
Sveinn Sigurðsson, fremur en hinir eldri stjórnendur henna >
hafi lotið að því að flytja íslenzkum lesendum efni, seffl talað1
til lágra hvata mannlegs eðlis. Eimreiðin á heldur ekki b'f sltl
því að launa, að hún hafi verið í þjónustu neinna ofstaekis
afla, sem þjappa fólki saman, svo að það slái skjaldborg ulT1
þau rit, sem þjóna ofstækinu. Eimreiðin hefur í höuduu1
Sveins verið frjálslynd og víðsýn, og hafa þar verið rædd vl
kvæm mál frá ýmsum hliðum. Hins vegar hefur þó ritstjór
inn ekki skirrzt við að segja djarflega skoðun sína á ýrns11111