Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 16

Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 16
160 EIM R EIÐI tvl verið eins og sunnudagur, rósótt og glaðlynd. Hún var liætt að borða, — meira að segja súrmjólk- ina. Þau drukku kaffið sitt, hún og hann Hrólfur úr sinni könnunni hvort. Og aldrei sást hún Jórunn liggja úti í glugganum, eins og hún hafði haft garnan af, hér áð- ur fyrr. Og ekki þurfti að öfunda hann Hrólf gamla, svo mikið var víst. Hann var svefnlaus, úttaug- aður og angurvær, vesalingurinn. Á svona dögum, þegar himinn og sjór lágu sarnan brjóst við brjóst og ylrauðir sólargeislarnir hvísluðu að logninu að fara nú að vakna, mátti koma auga á hann rölta niður í fjöruna og sjá hann standa við hliðina á gamla bátnum og horfa út á sjóinn. Hann liafði fyrir löngu kvatt allt og alla. Það, sem hér stóð eft- ir af honum, var bara visið gras, sem himnesk máttarvöld áttu eft- ir að færa til og útplanta. Það var ekkert réttlæti til lengur. Spikið rann af þeirn feitu og hamingjusömu, en hann Hrólfur gamli stóð hér eins og veðnrbarið gamalt minnismerki íslenzkrar frægðar og menning- ar, í fjjöru, á kambi, sem hann átti að yfirgefa innan fárra daga. Hér, þar sem blessuð báran liafði verið hvað sjálfstæðust, passað steinvölurnar sínar og sungið gömul rímnalögin í útsoginu. Hér, sem djúpið geymdi gullið og fiskinn, og krían tók morgun- leikfimina sína undan öllum öðr- um í blessuðu sólskininu. Það var einmitt hér á þessum kambi, sem menn gátu verið upp með sér og montnir af að eiga land og sögu. Hér, á þessum bleikgula malarkambi, þar sem öndvegissúlur Ingólfs Arnarson- ar námu land, milli sæbarinna steina og gáfu þjóðinni söguna hans. Hér, þar sem svartbakurinn passaði veiðiland sitt betur en nokkur dáti og gæfufuglinn krummi þuldi fræði sín yfir gam- alli blikkdós. Hér, þar sem andar- móðirin hló af fögnuði út í logn- bárunni með börnin sín, yfir kyrrð og friði. Og blessuð fisk- lyktin ilmaði úr fjörunni, sól- heitri og hreinni. En þessa dagana var Hrólfur garnli ldjóður og angurvær. Hann fór út á sjóinn á bátskel- inni sinni og gutlaði í logninu. Hann gxeiddi netin sín og hengdi upp veiðina án þess að vera hann sjálfur. En Jórunn seiglaðist. Hún var hvöss á brúnina sú litla. Það hafði nefnilega oftast reynzt þannig, að þegar Hrólfur var að missa kjarkinn þá liafði hún oft sýnt hvað í henni byggi, þótt hún væri ekki há í loftinu. „Bara anza þeim ekki, standa fast fyrir og vera ákveðinn, líta ekki við tylliboðum. Því að hvers
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.