Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 53

Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 53
JAKOB KRISTINSSON 197 aði fyrir mín tilmæli og birtist í Viðari, ársriti íslenzkra héraðsskóla, er ég annaðist þá ritstjórn á. Grein sú var skrifuð að Reykhúsum í Eyjalirði haustið I938, þegar þau hjónin voru alflutt frá Eiðum. Ég get þessa til að leiðrétta þann misskilning, sem ég hef orðið var við hjá sumum, að hann hafi flutt þessa grein við sín síðustu skóla- slit þá um vorið. í bréfi sem hann reit mér, dags. að Reykhúsum 28. nóv. 1938, segir svo m. a.: „Eg ,,klúðraði“ saman greinarkorni í ,,Viðar,“ innan um högg smiða og nóg sementsryk, enda mun þessi samsetningur minn hafa borið þess menjar. En við það varð að sitja.“ í greininni segir svo m. a.: „Hjá mistökum varð ekki komizt. Og nokkrir árekstrar voru óhjá- kvæmilegir. En allt gekk þó slysalaust. Skólalífið var oftast ánægju- legt, stundum jafnvel ástúðlegt, en aldrei illt og meini blandað nema tvisvar nokkra daga, þegar harðastur árekstur varð milli nemenda og mín. En hver árekstur varð langoftast ávinningur, greiddi fyrir gagnkynnum, skerpti kærleikann, þegar móðurinn var af mönnum, og gerði sambúðina heilli. Þegar á leið, urðu misfellur minni. Og tvö síðustu árin má óhætt segja, að kennarar og nemendur væru sem einn maður, samhuga og samhentir um allt, sem bætt gat skólalífið, aukið starfsárangur og orðið skólanum til sæmdar.“ Arekstrar gátu líka orðið milli síra Jakobs og samstarfsmanna hans. Ég minnist tveggja frá þeim þrem árum, sem við unnum saman, og hef ég að líkindum gefið tilefni til þeirra. En að loknum ávítum kom hann litlu síðar til mín bæði skiptin og baðst afsökunar, kvaðst hafa haft mig fyrir rangri sök. „Árekstrarnir voru ávinningur, greiddu fyrir gagnkynnum," eins og hann sjálfur komst að orði um viðskipti sín við nemendur. Síra Jakob var örgeðja, gat jafnvel verið bráður sem funi. Honum yfirsást ekki sjaldan. En hann taldi sér aldrei ósamboðið að játa yfirsjónir sínar og biðjast fyrirgefningar. Þetta fannst mér hann hafa fram yfir flesta ef ekki alla menn aðra, sem ég hef kynnzt. Síðla sumars 1938 var síra Jakob og Helgu konu hans haldið fjölmennt kveðjusamsæti á Eiðum fyrir atbeina Eiðasambandsins, er ég veitti Jrá forystu, og var Jón heitinn Þorleifsson listmálari feng- inn til að mála mynd af Eiðum, sem Jreim hjónum var gefin að skilnaði. í samsætinu voru margar ræður haldnar Jreim til heiðurs. Eftirmaður síra Jakobs, Þórarinn Þórarinsson, þá nýlega skipaður skólastjóri, minntist frú Helgu sérstaklega og lét Jress getið, að Jreir hefðu bezt hana Jrekkt, er bágt hefðu átt, og var það réttilega mælt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.