Eimreiðin - 01.09.1970, Side 63
JAKOB KRISTINSSON
207
fyrir eða hún kom þangað, meðan nrér dvaldist hjá sjúklingnum.
Umönnun sú er hún sýndi honum, var svo ástúðleg og nærfærin, að
ég hef fátt eða ekkert sambærilegt séð, nenra þá þakklæti hans og
hlýju.
Þegar síra Jakob Kristinsson varð sjötugur, minntust ýmsir hans
með virðingu og jrökk í blöðum og tímaritum, sem líklegt má
þykja. Meðal þeirra var sá, er þetta ritar. Mér fórust Jrá orð á þá
leið, að lrann væri „áreiðanlega mesti maðurinn meðal íslenzkra
kennara, sem ég vissi nokkur deili á.“ (Alþýðublaðið, 13. maí 1952).
Nú þegar liðnir eru nálega tveir áratugir, síðan þessi orð voru rit-
uð, meira en fimnr ár frá andláti síra Jakobs, mér verður litið til
baka, skoða persónu hans og kynni mín af honum úr þessari fjar-
lægð, hika ég ekki við að taka dýpra í árinni og segja af sannfær-
ingu:
Þrátt fyrir viðkvæma lund og veila heilsu, og ef til vill meðfram
vegna hvors tveggja, en einnig og ekki síður sakir trúnrennsku hans
í störfum, sannleikshollustu og hugsjóna elds, barnslegrar vizku og
víðsýni spekingsins, styrkleika og stöðuglyndis, en um franr allt
óbrigðullar vináttu og kærleika til alls, er lifir og hrærist, tel ég,
að hann sé að öllu samanlögðu merkilegasti maðurinn, sem ég hefi
hingað til kynnzt og að mestunr heilindum reynt.
Ritað í jólaleyfinu veturinn 1970—71.
Þóroddur Guðmundsson.
EÍMftEfÐfN
RITSTJÓRI: Ingólfur Kristjánsson.
AFGREIÐSLA: Stórholli 17 - Sími 16151 - Box 1127.
EIMREIÐIN kemur út fjórða hvern mánuð. Áskriftarverð árgangsins kr. 300,00 (erlendis kr. 330,00).
Heftið í lausasölu kr. 125,00.
GJALDDAGI er 1. apríl. Áskrift greiðist fyrirfram. Uppsögn sé skrifleg og bundin við áramót,
enda sé kaupandi þá skuldlaus við ritið. — Áskrifendur eru beðnir að tilkynna afgreiðslunni
bústaðaskipti.
PRENTSMIÐJAN ODDI HF.