Ægir - 01.03.1913, Qupperneq 7
/EGIR
31
takist að koma fyrirtækinu í framkvæmd eins og hjer er gert ráð fyrir. En ef svo skyldi
takast til, að hluttnka manna, sjerslaklega kaupmanna og kaupfjelaga á Norður- og Austurlandi,
yrði eigi nógu mikil, höfum vjer hugsað oss að byrja fjelagið með einu skipi, er sigli til Reykja-
víkur og Vesturlandsins með 2—3 ferðum til Norður og Austurlandsins; hæta þá heldur síðar
við liinu skipinu, þegar tiltækilegt yrði.
Af þessutn ástæðum höfum vjer gert tvær kostnaðaráætlanir fyrir fyrirtækið. Onnur á
við fjelag með einu skipi; hin við fjelag með tveim skipum, eins og að framan er lýst. Fara
þær hjer á eftir. Áætlanir þessar eru gerðar eftir nákvæma yfirvegun og bygðar á allítarlegum
upplýsingum. Að þvi er snertir áætlun vora um það, hversu mikinn flutning skipin muni fá,
þá skal það tekíð fram, að flutningurinn er áætlaður talsvert minni en slik slcip munu hafa,
sem nú eru í förum lijer við land.
Kostnaðaráætlanir.
I. Fyrir tvö slcip samkvœmt framangreindu.
Skip A. Milli útlanda og R e y k j a v i k u r — V c s t f j a r ð a.
Skipið sje að stærð hjer um bil 1200 smálestir (Dödvægt) og geti fermt um 700 smálestir
af útlendum vörum, en um 900 smálestir af íslenskum vörum. Pað sje með nýlískuvjelum
með yíirhitunar-gufuútbúnaði. Þetta atriði verður að álítast mjög þýðingarmikið, með því
að kolaeyðslan veröur mun minni, en liún er aðalútgjaldaliðurinn i starfrækslunni. Hraðinn
sje 12 mílur á vöku. Farrými 1. flokks fyrir 45 farþega og 2. flokks fyrir 30—35. Kælirúm
nægilega slórt fyrir kjöt og fisk. Alt smíði á skipinu af vönduðustu gerð. Slíkt skip kostar hjer
um bil 475,000 krónur. Reksturskostnaður á því 12000 krónur á mánuði; þar í talin öll útgjöld
skipsins, hafnargjöld, afgreiðslugjöld, ábyrgðargjald o. s. frv.
Skip B. Milli úllanda og kringum land.
Hjer um bil 1000 smálestir (Dödvægt), fermi um 550 smálestir af útlendum vörum, en um
700 smálestir af íslenskum vörum, hraði 11 mílur, farþegarúm nokkuð minna en á skipi A.
Að öðru leyti eins bygt og útbúið að öllu. Fað kostar hjer um bil 350,000 krónur. Reksturs-
kostnaður á mánuði 11000 krónur.
Gjöld (árlega);
Rekslurskostnaður: Skip A......................................kr. 144,000
---- Skip B.....................................— 132,000
Til afgreiðslumanna utanlands og innan..........................— 20,000
Framkvæmdarstjórn, skrifstofukostnaður, skattar, símagjöld,
burðargjöld o. s. frv............................... . — 15,000
Vextir af láni að upphæð 495,000 krónur, gegn 1. veðrjetti í
skipunum, i byrjun.....................................— 27,225
Viðhald.........................................................— 9,000
Gert fyrir óvissum útgjöldum................................. . —_________6,000
Alls kr. 353,225
Tekjur (árlega):
Skip A. Fer 11 ferðir árlega. Fytur 600 smál.
að meðaltali hingað i hverri ferð, hvcr
smál. á kr. 22,00............................ kr. 145,200
Flytur 375 smál. að meðaltali hjeðan í hverri
ferð, hver smál. á kr. 18,00 ..................— 74,250
Farsiöld.......................................kr. 244,450
S k i p B. Fer 8 ferðir árlega. Flytur 500 smál.
að meðaltali h i n g a ð í hverri ferð, hver
smál. á kr. 22,00 ..........................kr. 88,000
Flytur 400 sraál. að meðaltali hjeðan i hverri
ferð, hver smál. á kr. 18,00 ..................— 57,600
Kargjöld.......................................• ■ - _ 160,600
Tillag úr landssjóði................................................— 65,000
Kr. 470,050