Ægir - 01.03.1913, Qupperneq 13
ÆGIR
37
fiskistöðin í Miinchen á Þýskalandi sje núna að
gera ýmsar tilraunir með ódýrar og haganlegar að-
fevðir til geymslu á fiski, sem frystur hefir verið
lifandi og vekja megi síðan aftur til lífs að öllu
jafngóðan.
Pictet efnafræðingur hefur nú sannprófað þetta
með tilraunum sínum á 25 fiskum úr ósöltu vatni.
Hann ljet vatnið frjósa með þeim lifandi saman í
(shellu og geymdi fiskinn þar í (snum í tvo mánuði.
Þegar klakahellan var svo þídd upp aftur og fisk-
arnir með, reyndust þeir jafn bráðlifandi og flörugir
sem þeir voru þegar þeir voru veiddir.
Aðferðin er enn sem komið er nokkuð dýr, en
Pictet heldur tilraunum sínum áfram, og ekki örvænt
að lánast megi, að finna ódýrri og hægari aðferð
og mætti þá svo fara, að uppgötvun þessi gæti orðið
stórmerkileg og gæti gert breytingar á þeim geymslu-
aðferðum á fiski sem nú tíðkast.
Efrir Social-Demokraten danska 8. janúar 1913.
Aðalfundur Fiskifjelagsins.
(Úr fundargjörð).
Ár 1913 laugardaginn 22. febr. var hald-
inn fundur í »Fiskifjelagi íslands«. Var
það annar aðalfundur fjelagsins.
Forseti fjelagsins, Hannes Haíliðason
skipstjóri, stakk upp á Dr. Jóni Þorkels-
syni sem fundarstjóra og var það sam-
þykt, en fundarskrifari var Magnús Sig-
urðsson cand. juris.
Þá voru tekin fyrir þau mál er fyrir
lágu samkv. dagskránni.
1. Forseti skýrði frá hag ijelagsins og
framkvæmdum þess á hinu liðna ári.
Hann skýrði frá að maður liefði verið
sendur út um land til þess að vinna að
útbreiðslu félagsins. Meðlimir væru nú
orðnir 429 alls. Meðlimaskýrteini væru
enn þá ekki tilbúin, en myndu koma brált.
Deildirnar væru nú 11. Forseti skýrði frá
hinum ýmsu deildum og í sambandi við
það að fiskifjelagsdeild Stokkseyrar hefði
sent sem fulltrúa sinn hér á fundinn hr.
Pál Bjarnason frá Stokkseyri. Þá gal for-
seti þess að það mál sem fjelagið hefði
barist inest fyrir væri steinolíumálið, og
hefði bardagi stjórnarinnar byrjað þegar á
síðasla alþingi.
Þá skýrði forseti frá hag fjelagsins. Tekj-
ur höfðu orðið alls 3602 kr. 14 au. Ægir,
blað fjelagsins hafði kostað það 1708 kr.
64 au. og var hallinn við útgáfu þess rúm-
ar 1000 krónur. Gjöldin liöfðu verið
2688 kr. 63 au. og var því tekjuafgangur
914 kr. ól au. Forseti fél. bar undir fund-
inn hvort þær deildir, sem ekki hefðu greitt
skatt til fjelagsins og sent skilríki sín ættu
að mega taka þátt í fulltrúakosningu til
fiskiþingsins og gat þess í ræðulok sín að
boðað hefði verið til þessa fundar með
löglegum fyrirvara.
Mattlr. Þórðarson ritstj. gat þess að sendi-
maður fjelagsins mundi hafa slarfað vel
og jafnvel fengið loforð fyrír deildarstofn-
un í Vestmanneyjum, hefðu einhverjar
brigður orðið á þessu en nú mundi þetta
lagast og deildin komast á laggirnar. Sam-
þykt var að deildir þær, sem væru ný-
stofnaðar en ekki væru enn þá orðnar
meðlimir fjelagsins, mættu taka þátt i full-
trúakosningu til fiskiþingsins, ef þær liefðu
uppfylt skyldur sínar um inngöngu í fje-
lagið áður en fulllrúakosning færi fram.
2. Fulltrúakosning til fiskiþingsins fór
því næst fram á aðalfulltrúunum. Kosnir
voru: Bjarni Sœmundsson adjúnkt með 10
atkv., Matth. Pörðarson 10 atkv., Tryggvi
Gunnarsson f. bankastj. 7 atkv. og Geir
Sigurðsson skipstjóri 6 atkv. Varafulltrúar
voru kosnir: Magnús Sigurðsson 10 atkv.
og Porst. Sveinsson skipstj. 5 atkv.
3. Forseti tók þá til máls og skýrði
frá því livaða mál stjórn fjelagsins ætlaði
að leggja fyrir fiskiveiðaþingið í sumar.
Málin voru þessi:
1. Aukin strandgæzla viö ísland. 2. Steinolíu-
málið. 3. Kensla og liirðing og meðferð mót-