Ægir - 01.05.1914, Blaðsíða 3
ÆGIR
51
Er liinn minsti þeirra 4.7 smálestir að
stærð, en hinn stærsti 15.g smálestir. Auk
þess eiga hreppsbúar 3 þilskip, er einnig
ganga til fiskiveiða.
Hafa nú útgerðarmenn vjelabátanna
gei't samband með sjer til kaupa á út-
gerðarvörum og sölu á fiski. Má vænta
mikils af slíkum samböndum, ef þau
eru skynsamlega stofnuð.
Frá 11. til 13. mars var jeg á ferð i
Auðkúluhreppi í Arnarfirði. Reyndist
eigi fært að stofna þar deild sökum
mannfæðar og strjálbýlis. Útgerð þar í
hreppi er aðeins á róðrarbátum og er
heimræði aðeins frá 4 bæjum. Vjelarbáts-
útgerð hefir aðeins einn maður reynt,
en hún mishcpnaðist með öllu.
Er Arnarfjörðurinn engan veginn vel
fallinn til slikrar útgerðar, liggur of langt
frá fiskimiðunum að vetrinum, og báta-
lægi fremur innarlega í firðinum.
Hinn 17. mars hjelt jeg fiskifjelags-
fund að Flateyri, að afioknum þing-
málafundi, er þar var haldinn þann dag.
Var orðið framorðið dagsins og voru
margir farnir, er verið höfðu á þing-
málafundinum. Stofnaði jeg þar deild
með 13 meðlimum og hefi jeg heyrt að
nokkrir hafi bætst við síðan.
Ekki gat jeg ílutt þar neitt erindi, sök-
um þess hve áliðið var dagsins.
Daginn eftir, hinn 18. mars, hjelt jeg
fyrirlestur í Fiskifjelagsdeild Súgfirðinga.
A fundinum gengu 6 menn i deildina
og hefur hún nú 40 meðlimi.
Laugardag 21. mars hjelt jeg fyrirlestur
i Bolungarvik og stofnaði þar deild með
64 meðlimum. Studdu mig að því eink-
um þeir Pjetur kaupm. Oddsson, Jón
Eyfirðingur kaupm. Oddur kaupmaður
Guðmundsson og Jóhann oddviti Bárð-
arson. — Þar flutti jeg og fyrirlestur liks
efnis og á hinum stöðunum.
Daginn eftir, sunnudaginn 22. mars
flutti jeg fyrirlestur i Hnífsdal og stofn-
aði þar deild með 24 meðlimum.
Mánudaginn 23. mars flutti jeg erindi
i Fiskifjelagsdeild ísfirðinga á Isafirði.
Nokkrir menn gengu í deildina í lok
fundarins.
Þegar hjer var komið, hafði jeg í
hyggju að halda nnrður yfir Steingrims-
fjarðarheiði til Hólmavíkur og þaðan
norður á Reykjarfjörð. Ætlaði jeg mjer
í þeirri ferð að gjöra tilraun til að stofna
deild í Súðavik i Álftafirði. En jeg hætti
við þá fyrirætlun sökum þess, að norðan
stórviðri var á hverjum degi og ófært
inn yfir djúpið. Af kunnugum mönnum
hafði mjer verið sagt, að naumast mundi
unt að koma deild á fót í Súðavík, og
jeg kynokaði mjer við að liggja lengi
aðgerðalaus á ísafirði. Rjeð jeg þvi af
að halda aftur vestur að Haukadal og
og bíða þar næstu skipsferðar til Reykja-
vikur og búa mig þar undir væntanleg
ferðalög í aprilmánuði.
Að kveldi hins 25. mars kom jeg heim
lil Haukadals og dvaldi heima til þess 30.
Hinn 31. mars fjell vjelarbátsferð frá
Haukadal til Bíldudals. Tók jeg mjer
far með bátnum og flutti þá um dag-
inn fyrirlestur í Fiskifjelagsdeild Bíld-
dælinga og hjelt svo heimleiðis aftur um
kveldið með bátnum.
Hefi jeg þannig flutt erindi á 10 slöð-
um, sem sje:
Bíldudal, Bolungarvík, Eyrarbakka,
Hnifsdal, ísafii'ði, Stokkseyri, Súganda-
firði, Vestmannaej'jum, Vogurn og Þing-
eyi'i og stofnað 3 nýjar deildir með
samtals 101 fjelaga.
Haukada) 4. apríl 1914.
Matlh. Ólafsson.