Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1914, Side 10

Ægir - 01.05.1914, Side 10
58 ÆGI R virðist sjá eftir öllu þvi mikla næringar- gildi, sem varpað var í sjóinn. Vjer þekkj- um inann, sem flutli heim til sín að fiski- veiðum loknum 300 herta þorskhausa; það er örðugt að herða hausa á íiskiskipun- um, en hann gjöiði það þó, og sýnir það best hvað gjöra má ef viljann vantar ekki. Fyrir alt er i sjóinn fer, sem nota má til matar, verður á haustin, þegar heim er komið, að snara út beinhörðum peningum, til þess að kaupa matvöru úr búðum, eða kjöt, sem kemur i stað þess, sem var lagt upp i hendur manna, en fleygt burtu sem rusl væri. En til þess að sýna að hjer er eigi um einskisvirði að ræða, og að í þessu, sem mörgu öðru, er þekkingarleysið og sum- part hirðuleysi þess valdandi að vjer kunn- um ekki að meta og færa oss í nyt, það sem lagt er upp í hendurnar á .oss, þá skal hjer tekið fram, að í skýrslum hr. síldarmalsmanns Jóns Bergsveinssonar, frá ferð hans til Hollands 1906, er verð á einni tunnu af kinnum frá 25,50—33,75 kr., en að jafnaði 26—27 kr. tunnan. Kverksigar liafa þá staðið hæst 237 kr. tunnan, en lægst 100 kr., en meðalverð mun þó vera 120 kr. tunnan. (Hún var lengi 11 kr. hjer). 1 tunna af söltuðum karfa mundi eflaust komast hjer í 60—70 kr., eftir tilboði er vjer fengum fyrir nokkru frá Kristjaníu. Háf er fleygt hjer og hann víðast álitinn óætur og sumstaðar banvænn — en 1902 er oss kunnugt, að hann var seldur í Tönsberg til matar og var þá verðið 25 aurar fyrir hvern háf — og vel tilreiddur er hann besta fæða — og mun nú víða i Noregi vera farið að borða hann. Hve mikið af öðu rekur eigi á land víða við strendur landsins, t. d. á Álftanesi. Um vetur höfum vjer sjeð þar eftir vestanbrim tugi tonna af þessari kraftmiklu ágætis fæðu, en þau gæði voru ekki og eru ekki hirt, þau koma aðeins að notum einstaka hrafni, sem kroppar öðuna meðan hún er ný, hitt má eiga sig. — Lítið á reiðann á frönsku fiskiskipunum; hvort heldur á segl- eða gufuskipum — hann er alþakinn lúðum og öðru fiskmeti, er hengt er þar til þerris. Þeir skammast sin ekki fyrir að láta sjá að þeir hirði það, sem annars mundi öllum ónýlt; og þó hafa Frakkar, þegar á efnalegar ástæður er litið, miklu meira sjer til afsökunar, væri þeim borið á brýn að þeir færu illa með verðmæta vöru, en vjei íslendingar, þvi nú sem stendur, að minsta kosti, er engin ástæða til að lifa og sýna sig »/Io//«. Þegar Englendingar byrjuðu lijer veiðar sínar, þá liirtu þeir aðeins kolann, síðan fóru þeir að hirða ísu; öllu öðru var varpað í sjóinn, til eyðileggingar fyrir liskimenn og fiskimið. í þann tima mátti fá nægan fisk fyrir lítið verð; Englendingar buðu mönnum að hirða það, sem þeir ella mundu varpa útbyrðis, en mönnum þótti það svo löðurmannlegl að taka slik- um boðum, að lög voru sett er bönnuðu slikt, og þó var eina ráðið þá, að þiggja og bjarga eins miklu í land og hægt var, þótt eigi væri til annars, en að íorðast niðurburðinn, sem hlaut að eyðileggja fiskimiðin; en auk þess voru hjer peningar í boði, eða peningavirði, en að taka á móti þvi og hagnýta sjer, þótti ekki sæma og það lá sekt við, að hirða það og nola; menn máttu aðeins liorfa á og sjá björg- inni fleygt í sjóinn, við því lá engin sekt. Þeir sem fóru i kringum lögin eða skeyttu þeim ekki, öfluðu sjer peninga, sein til þessa dags hefir verið sú undirstaða, sem þeim heíir bjargað i fiskileysi og fleiru, og margur mundi nú betur stæður, hefði hann hirt fiskinn, sem varpað var í sjóinn, til að fullkomna eyðileggingu Faxaflóa. Sektirnar voru lágar í þá tíð, en fældu þó menn frá hinum svokölluðu lagabrotum;

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.