Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1914, Síða 11

Ægir - 01.05.1914, Síða 11
ÆGIR 59 en þegar Guðm. heitinn á Auðnum var sektaður um 40 krónurnar fyrir þetta hneyksli, að hirða fisk, þá átti hann húsin sín full, svo ekki gat það heitið dýrl. Nú hirða Englendingar alt, er þeir álíla peningavirði. Finst íslendingum ekki tími kominn lil að byrja á hinu satna? Peningar út úr lanðinu. Þúsundir fyrir þilskip, hundruð þúsunda fyrir botnvörpuskip. Leitt var að horfa á þegar Færeyingar sigldu fiskiskipunum hjeðan, og margur fiskimaðurinn hefir með kvíða hugsað um framtíð sína, er hann horfði á flotann er sigldi út úr höfninni og var eigi lengur íslensk eign. Ressi skip höfðu veitt fjölda fólks atvinnu bæði á sjó og landi, og um eitt skeið virtist svo, sem útgerðin borgaði sig, en svo komu hinar afardýru viðgerðir, sem fóru með allan ágóða. Það þarf ekki ætíð að vera vegna fiskileysis að skip fiska litið; það þarf góða fiskimenn undir færi — áhugi verður að fylgja verkinu, en sá áhugi manna var að hverfa, því flestum var farið að leiðast skakið og vildu kom- ast að á botnvörpuskipum, þar var gjaldið vist, en á seglskipunum ekki. Peningum var fleygt burtu af þekkingarleysi, þegar skipin voru keypt, það vitum vjer með vissu. Það átti aldrei að senda skipshafnir út til að sækja skipin; það átti að auglýsa i blöðum, að góð skip yrðu keypt hjer eða á öðrum höfnum landsins, ef Eng- lendingar kæmu með þau hingað. Þá hefðu þeir orðið að slaka til með verðið, heldur en að sigla skipunum aftur til Englands, einkum vegna þess, að það var mjög hælt að nota þessi skip til veiða — allir vildu eignast botnvörpuskip — þessir kúttarar urðu einliversstaðar að vera og það var aðeins um skipakviarnar, að ræða, og það kostaði peninga; auk þess varð eigandi að borga flutning á þeim hingað og þangað um kviarnar þegar þeir lágu til hindrunar öðrum skipum, sem afgreiða þurfti og urðu þeir þannig djrrir ómagar. Eigandi »HaraIdar« frá Akranesi, sem áður hjet »William Boys« en nefnist nú »Hákon« og er eign verslunar H. P. Duus, sagði oss, að hann hefði verið í mestu vandræðum með kúttara sína, þegar það happ bar að höndum, að íslensk skipshöfn er send til Hull, og hann gat selt skipið með þvi verði, sem hann selti upp. Vjer vorum hjá honum eitt kvöld, og hann sagði, að liann hefði verið kominn að því að sigla skipinu til íslands og láta það fara fyrir eitthvað verð — aðeins losa sig við það — »og«, bætti hann við, »þá gátuð þið tiltekið verðið, því ekki hefði jeg farið aftur lieim með skipið, en nú eruð þið hingað komnir og jeg og við fleiri skips- eigendur vitum, að þið farið ekki skips- lausir heim, og nú erum það vjer, sem til- tökum fjárhæðina, auk þess, sem Mr. Massey þarf eitthvað fyrir snúð sinn«. Eigandi »Willam Boys« hjet Mr. Lloyd, hann var útgerðarmaður og kaupmaður. Mr. Massey var sá, sem var milligöngu- maður margra við skipakaupin. Vjer gát- um þessa lijer er vjer komum heim, en því var ekki sinnt. Um skoðun á þessum skipum látum vjer ósagt, en sum voru keypt án þess að þau væru lögð á þurt land til skoðunar, en ílest fóru þau þó í þurkví og voru máluð. í kringum stytt- ur var allvíða troðin tólg; alt sljett og málað og var sem einlrjáningur þar sem styttur og þilfar kom saman; en hvað gerði það til, — aðeins að fá kúltara, það var aðal málið. Þótt íslendingar heíðu

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.