Ægir - 01.05.1914, Side 16
64
ÆGIR
Norskur og íslenskur saltflskur á Spáni.
Lund, ræðismaður Norðmanna í Barce-
lona hefir sent utanríkisráðunejdi Norð-
manna skýrslu um saltfisksölu á Austur-
og Suður-Spáni. Það kemur þar í ljós, að
Norðmenn hafa tapað þar drjúgum mark-
aði, af því að saltfiskur þeirra er ekki
verkaður nógu hreinlega og í heild sinni
ekki nógu vel. Spánverjar heimta hvítan
fisk, sem geymist vel, en norskur saltfiskur
er oft blakkur og skríður í maurum, er
dálkbrotinn og ekki sem girnilegastur á
að sjá. Sala á norskum fiski fer því mink-
andi. Árið 1890 voru fluttar til Barcelona
5000 smálestir af norskum saltfiski; árið
1900 nálægt 1500 smálestir, en 1912 ein 800.
En sala á saltfiski frá íslandi og Fær-
eyjum hefir aukist á sama tímabili svo,
að hún hefir farið úr 1300 upp í 8,500.
Kaupmiðlarnir í Barcelona eru efins um
að Norðmönnum lánist nokkru sinni að
vinna aftur spánska markaðinn, senr þeir
voru einir um fyrir 25 árum.
(Eftir Social Demokraten.)
Terslnnarfrjettir. Kaupm.höfn 10/6.
Saltfiskur (þurfiskur) óafhnakkaður, stór
88—90 kr., smáfiskur 74,00 ísa 68,00,
Labradorfiskur 60,00, löngur 78,00, upsi
48,00, keila 60,00. Hnakkakjddur stórfiskur
82,00, hnakkakíldur millifiskur 72,00. Að
hnakkakýldur fiskur, sem stendur, er tals-
verl lægri hjer en óafhnakkaður, orsakast
af því, að hnakkakýldi fiskurinn, sem
venjulega er linþur, selst aðeins á mark-
aðinum i Danmörku, en óafhnakkaður
fiskur er útíluttar hjeðan til Miðjarðar-
hafslandanna.
Ofannefnt verð er miðað við fisk af
hestu tegund. Sje varan ekki fyrsta ílokks
að gæðum, er verðið lægra.
Saltfiskur (óverkaður), stór 60,00, smá-
fiskur 54,00, ísa 44,00.
Li'/si. Þorskalýsi ljósl, grómlaust 38,00,
brúnt 34,00, dökt 30,00. Meðalalýsi 40—45
kr. hver 105 kiló. Hákarlsl5Tsi ljóst 36,00,
brúnt 30,00 lrver 100 kiló.
Sundmagar áætlað 1,10 kílóið.
Hrogn 18—19 kr. tunnan, 125 kíló netló-
vigt. Það eru þó fremur líkur fyrir lækk-
andi verði.
Sild má heila óseljanleg, óvíst að hægt
sje að fá 5 kr. fyrir tunnuna.
Símnefni Jakobs Gunnlögssonar í Khöfn
er: Starfsemi, Köbenhavn.
Aflaskýrsla frá Noregi.
Herra Mowinckel í Bergen, hefir sent
Fiskifjelaginu skýrslu, er nær til 5. maí.
Afli hefir verið ágælur í Noregi til þessa
og meiri en við var búist, en með því er
aðeins meint hvað aílast hefir við Noregs
strendur. Um miðjan aprílmánuð byrjuðu
fiskiveiðarnar við Finnmörk, eins og vant
er, en til þessa hefir aflast mjög lítið, því
ólíð hefir verið og gæftaleysi og haldi því
áfram, þá mun aíli rýr í lok vertíðar á
því svæði.
Alls er á land komið frá 1. janúar til
5. maí 63.000.000 af þorski,
af því liert: af því saltað:
11.100.000 50.000.000
Hrogn lifur og lýsi var þ. 5. maí (mælt
í hektólítrum):
Gufubrætt lýsi: Hrogn:
46.910 60.480
Lifur í aðrar lýsislegundir:
8993.
Hin nýja gota er komin á markaðinn
og er daglega seld, og fyrir hana hefir
fengist: 35 kr., 25 kr. og 15 kr. fyrir
lunnu af fyrstu, annari og þriðju tegund,
og má vænta þess að verð þetta haldist.
Fyrir bestu tegund af gufubræddu lýsi
hafa fengist 46—47 kr. fyrir tunnuna, en
fyrir brúnt lýsi á olíutunnum, hefir verðið
verið verið 36.50 fyrir hver 106,6 tvípund.
Fiskur lækkar heldur í verði, og sem
stendur, er ómögulegt að segja hvort það
muni verða mikið eða lítið.
PrentsmiOjan Gutenberg.