Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1915, Qupperneq 7

Ægir - 01.09.1915, Qupperneq 7
ÆGIR 117 Lög- nra atvinnu við siglingar. 1. gr. Með takmörkunum þeim sem sett eru i lögum þessum, skal öllum vera heim- ilt að leita sjer atvinnu við siglingar á íslenskum skipum. I. kafli. Um rjeit lil jormennsku á skipum 6—12 lestir (tonn). 2. gr. Rjett til að vera formaður á islenskum vjelbát eða þilskipi, 6 til 12 lesta að stærð, hefur sá einn, er leggur fram vott- orð frá siglingafróðum manni, tilnefndum af yfirvaldi um það: a. að hann þekld á áttavita; b. að hann þekki alþjóðlegar reglur til að forðast ásiglingu. Svo skal hann og sanna með vottorði læknis, að sjón hans sje ekki sjerstaklega áfátt, samkvæmt reglum er stjórnarráðið setur. Gegn þessum vottorðum fær hann skírtetni hjá yíirvaldi, er veitir honum rjett til að vera formaður á vjelbát eða þilskipi, 6 til 12 lestir að stærð. Fyrir skírteini þetta greiðist ein króna, er rennur í landssjóð. II. kafli. Um rjett til skipstjórnar á skipum allt að 30 lesta. 3. gr. Rjett til að vera skipstjóri á íslensku skipi í innanlandssiglingum, ef að skipið er yfir 12 lestir, en ekki yfir 30 lestir, að stærð, hefir sá einn, sem fengið hefur skipstjóraskírteini á smáskipum. 4. gr. Sá einn getur staðist skipstjórapróf fyr- ir smáskipi, er: a. kann að marka stað skipsins á sjá- varuppdrætti og hefir nægilega þekk- ingu á sjávaruppdráttum og notkun þeirra yfir höfuð; b. kann að nota áttavita og ber skin á afhvarf (devition) og misvísun; c. kann að nota skipshraðamæli: d. þekkir björgunartækin og alþjóðleg- ar reglur til að forðast ásigling; e. sannar oð sjón hans sje svo full- komin, sem nauðsynlegt er fyrir stýrimenn; f. hefir stundað siglingaatvinnu minst 24 mánuði á skipum, ekki minni en 12 lesta að stærð, eða verið for- maður á vjelbát í 24 mánuði, ekki minni en 6 lesta. Próf þetta fer að eins fram í kaupstöð- um og þeim kauptúnum sem lögreglu- stjóri býr í, og skipar hann i prófnefnd 3 valinkunna skipstjóra. Stjórnarráð ís- lands semur reglur um prófið og fyrir- mynd fyrir prófvottorðum. Sá er staðist hefur prófið, getur fengið skipstjóraskír- teini á smáskipum hjá yfirvaldi, og skal hann greiða fyrir það 2 krónur, er renna í landssjóð. III. kafli. Um rjett til skipstjórnar og stýrmensku á skipum alt að 300 lesta, í innanlands og utanlandssiglingum. 5. gr. Rjett til að vera skipstjóri i innan- og utanlandssiglingum á islensku fiskiskipi og i innanlandssiglingum á íslensku verslunarskipi, eigi yflr 300 lesta að stærð, hefir sá einn, sem fengið hefur skip- stjóraskírteini á fiskiskipi.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.