Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1917, Síða 5

Ægir - 01.11.1917, Síða 5
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS 10. árg. Reykjavík. Nóvember —Desember, 1917. Nr. II.—12. Tryggvi Gunnarsson. Gunnlaugur Tryggvi er fæddur í Lauf- ási við Eyjafjörð 18. okt. 1835. Foreldrar hans voru: Gunnar prestur í Laufási, Gunn- arssonar prests í Lauf- ási Hallgrimssonar mál- ara, og móðir hans Jó- hanna Kristjana, dóttir Gunnlaugs s}7slumanns Briem á Grund í Eyja- firði, er var sonur Guð- brandar prestsá Brjáns- læk, Sigurðarsonar prests á Brjánslæk og má rekja þann ættfegg í beinan karllegg til síra Jóns Pálssonar Maríu- skálds, prests á Grenj- aðarstað (f 1471). Foreldrar Tryggva voru mestu merkis- hjón. Síra Gunnar var bæði góður prest- ur og heppinn læknir. Hann var 26 ár prestur í Laufási, en hafði áður verið yfir 20 ár skrifari Geirs biskups. Frú Jóhanna var annáluð fyrir dugnað, gáf- ur og manngæsku. Áttu þau fimm börn og var Tryggvi elstur, þá Kristjana, sem nú mun ein lifa þeirra systkina, ekkja eftir Pét- ur Hafstein amtmann, móðir Hannesar banka- stjóra, þá Gunnar er prestur varð á Sval- barði og Lundarbrekku, þá Eggert sem varð þjóðkunnur maður og yngstur Geirfinnur sem l'ór til Vesturheims. Tryggvi naut í upp- vexti meiri mentunar en alment gerðist, en jafnframt var honum haldið að vinnu. Um 10 ára aldur var hon- um það fyrirsett t. d. að prjóna hálfsokk á dag og kemba fyrir vinnukonu sem sat við spuna. Tímann sem af gengi mátti hann nota sjálfur og notaði hann þann tíma einkum til smiða og teikninga. Vandist hann því þess vegna þegar í

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.