Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1917, Qupperneq 10

Ægir - 01.11.1917, Qupperneq 10
162 ÆGI R franska fiskiskútu er strandaði í Fá- skrúðsfirði, fleytli henni inn fjörðinn, dró hana á land og gerði hana sjófæra á fáum dögum, svo henni var siglt milli landa, og var nálega verkfæralaus. f*að skip mun Gránufélagið eiga. enn, og heitir, eða hét, Rósa. Frægastur er Tryggvi af brúasmíðun- um. Það var i Noregsferðinni að áhugi hans vaknaði fyrir því að brúa ár á ís- landi, en þá var engin brú leljandi á ís- landi, Hann braust þegar i því að fá Skjálfandaíljót brúað, en undirtektirnar urðu afar daufar í fyrstu og um tíma liggur málið niðri, enda nóg annað að sýsla. Þá er það lítið alvik sem verður orsök til þess, að Tryggvi lofar að gefa efni í brú á smá á i Fljótsdalshéraði, efbænd- ur vildu flytja efnið af Seyðisfirði óg koma brúnni upp. En það var ekki nóg að gefa efnið, það varð að hafa það alt tilhöggið, og það þannig að flytja mætti á hestum og það þurfti að ákveða gerð brúarinnar. Það var Tryggvi sem fann upp brúar- gerðina, gerði teikning af henni, bar undir erlenda verkfræðinga og fékk lofs- orð þeirra. Með þeirri gerð eru allar brýr sem komust upp á íslandi á næstu árum. Efnið í hina lofuðu brú flutti Tryggvi næsta ár til Seyðisfjarðar á skipi Gránu- félagsins og var það á miklu stærri á, en lofað var í fyrstu. En deyfðin var svo mikil í fyrstu að Tryggvi varð að ganga fast eftir um að efnið kæmist á staðinn og yrði notað og þurfti jafnvel að hóta að taka aftur gjöfina. Þessi brú sem teljast má fyrsta brú á íslandi var á Eyvindará í Fljótshéraði. — Það er mikil mannlýsing í þessu fólgin, að það er ekki nóg að Tryggvi gefi efnið, heldur þarf hann og að ganga ríkt á eftir að það sé notað. Nú rak hver brúin aðra. Kann eg ekki að nefna þær í réttri timaröð, en þessar ar eru merkastar: brúin á Skjálfandaflóti, á Glerá og á Þverá í Eyjafirði og á Jök- ulsá á Brú. En allra stærst og merkust er Ölfusárbrúin. Og öll afskifti Tryggva af því verki, eru ekki síður góð lýsing á honum. Alþingi veitti 40 þús. kr. til brúar á Ölfusá og sýslurnar áttu að leggja 20 þús. En danskur verkfræðingur, sem fenginn var til að gera áætlun, taldi að brúin myndi kosta um 80 þúsund. Nelle- mann íslandsráðherra þorði nú ekki að staðfesta brúarlögin, því að hann óttað- ist að hvergi fengist fé til þess að borga það sem brúin kostaði umfram fjárveit- ing. Lá málið svo kyrt um hrið og var ekkert útlit til að verkið yrði hafið. Þá fór Tryggvi á fund Nellemanns og lagði fast að honum að láta staðfesta lögin, en Nellemann þverneitaði. Þá gerði Tryggvi sér ferð austur að Ölfusá til þess að líta á brúarstæðið. Ivomst hann að þeirri niðurstöðu að brúnni mætti koma upp fyrir 55 þúsund krónur. Átti hann nú fund með bændum og létu þeir lík- lega um stnðning og hétu að flytja 300 hestburði ókeypis að brúarstæðinu frá Eyrarbakka og leggja til 200 dagsverk við brúarvinnuna. Og þegar suður kom aftur til Reykjavíkur var honum heitið að fá 6000 kr. frá amtinu. Við þessi tíðindi fór Tryggvi utan og fékk Nellemann til að staðfesta brúarlög- in og bjóða út brúarsmíðina.n Yar það gert i Noregi, Þýzkalandi og Danmörku. Lægsta tllboðið sem kom var 78 þús. kr. Brást Nellemann nú reiður við og sagði að Tryggvi hefði komið sér í slæm vandræði. Þá varð það að samn-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.