Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1917, Side 15

Ægir - 01.11.1917, Side 15
ÆGIft 167 Dugnaður og óeigingii’ni. Þar sem Trj^ggvi Gunnarsson er til moldar hniginn, á ísland þeim syni sín- unx á bak að sjá, sem rneiri og farsælli verkum heíir hrundið i framkvæmd, þjóðinni til heilla, en nokkur sem eftir lifii'. Mjög margir aðrir hafa safnað meii’i auð fyrir sjálfa sig. Margir aðrir liafa sýnt mikinn dugað, fyrir sjálfa sig — meiri dugnað fyrir sjálfa sig, en hann. En enginn núlifandi íslendingur hefir unnið eins mörg og farsæl verk, fyrir heildina, í framkvæmdum innanlands, eins og Tryggvi Gunnarsson. Þetta er mikið mælt, en ekki ofmælt. Og má enn minna á kvæðt Þorsteins Erlingssonar: »En þá mun einhvers olckar lítið getið, er ísland gamla telur hörnin sín, ef dugur þinn og afl er einkis metið og enginn nefnir fremdarverkin þin«. Eegar það tvent fer saman: afburða dugnaður og óeigingirni — þá er þess að vænta að starfið verði bœði mikið og gott. Þvi miður fer það sjaldan saman. Dugnaðarmennirnir hugsa venjulega lang mest um sig. Tryggvi Gunnarsson sameinaði þelta tvent í sér: afburða dugnað og óeigingirni. Og svo hæltist það ofan á að honum var gefið langt líf, ágæt heilsa og loks óslökvandi löngun til þess að vinna gagn. — Þess vegna eru störfin svo mörg sem getið hefir verið og þess vegna eru þau líka svo góð. Tryggvi Gunnarsson var mikilmenni. Fyrsl og fremst vegna dugnaðarins. Hann var fyrir skömmu nefndur »fram- faratröllið« i blaði verkamanna hér í bænum. Og annar ritstjóri hér í hænum sagði það um hann, að hann hafi verið margra manna maki. Starfsbróðir Tryggva, sem starfað hefir lengst með honum allra núlifandi manna, sagði það um hann, við þann er þetta ritar: »Eg get ekki talað yfir honum. Hann stendur mér of nærri til þess. Það }'rði álitið oflof, sem eg segði um liann. En Tryggvi hafði sjálfur óljósa hugmynd um hvílíkt mikilmenni hann var«. Dugnaðurinn kom fram í þvf, að eng- inn glímumaður stóð honum snúning á yngri árum, enginn afkastaði jafnmiklu i smíðum á skömmum tíma, Hann brauzt á milli bæja í bráðófærum veðrum með- an hann var bóndi. Hann vakti í 7 sól- arhringa við að gera »Rósu« sjófæra. Hann gat fram á elliár haft ótal járn í eldinum, án þess nokkurt þeirra brynni. Og loks lét hann sjúkdóminn síðasta al- drei yfirbuga sig. Hann lá ekki einn ein- asta dag i rúminu. Hann íór á fætur á hverjnm degi þrátt fyrir óumræðilegar kvalir. Hann háttaði síðasta kvöldið fjór- um tímum áður en hann dó, og þó var langt frá að segja mætti að snögt hafi orðið um hann. En dugnaðurinn var ekki nema önn- ur hliðin. Hin er sú, að hann beitti öll- um þessum dugnaði öðrum til heilla og gagns. Hann spurði ekki um það, hvort þetta eða hitt, sem gera þurfti, væri sér ábatasamt. Hann spurði einungis um hitt, hvort það væri heildinni, þjóðinni gagn- legt. Og — rækist það á, að það sem var heildinni til gagns, var honum sjálfum til fjártjóns — þá var ekki að þvi að spyrja, að hann lók á sig það fjártjón til þess að vinna heildinni gagn. Slíkir menn eru sjaldgæfir — nijög sjaldgæfir. En þegar einhver þjóð eign- ast slikan son, þá er það helg skylda liennar að halda veglega á lofti minning hans, ef ekki til þess að heiðra hann, þá a. m. k. til þess að sýna hinni upp-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.