Ægir - 01.11.1917, Síða 31
Æ G i R
183
Fyrir ísland er slíkt skip alveg bráðnauðsynlegt ef það land á að gefa fylgt
með framförum annara landa. Hinar miklu fiskiveiðar umhverfis strendur þess
geta gefið af sér ógrynni auðœfa og hagur þjóðarinnar heimtar að slíkt sé hagnýtt.
Og ef það er ekki gert munu aðrar þjóðir taka gróðann frá henni. Er það svo hér
sem í flestu öðru, að það eru ekki vélarnar eða skipin sem eru svo mikils virði,
heldur mennirnir þegar þeir eru nógu vel kunnandi til þess að sljórna þeim og ná
mestum hagnaði með sem minstum tilkostnaði.
Eg þykist vita að einstakir menn á íslandi séu ekki svo auðugir, að þeir
séu færir um að standa straum af skólaskipi, en ef einstakra manna félög gela
borgað 12 þús. pd. sterl. fyrir botnvörpung, þá er enginn efi á þvi, að landsstjórn-
in islenzka ætti að geta útvegað skólaskip. Og úr því að stjórnin hefir vald til að
taka skip sem fiska i landhelgi, því þá ekki að fá sér skólaskip sem um leið fram-
kvæmdi strandgæsluna. Liklega mundu sektir tekinna skipa og það sem kæmi inn
fyrir björgun nægja fyrir reksturskostnaði og gera fyrirtækið sjálfbjarga. En þetta
er nú að eins peningalega hliðin á málinu og er hún harla lítil á metunum á
móts við það gagn sem hefðist upp úr góðri æfingu íslenzkrar sjómannastéttar. —
Mundi nú ekki vera tiltækilegt að nota skip sem eg gæti útvegað i þessu skyni og
sem gæti fengist alveg útbúið fyrir um 3 þúsund pund sterl. — Einnig er til annað
skip stærra en mundi kosta hér um bil 5 þús. pd. Bæði mundu hæfileg til síns
brúks, en vegna vetrarstórsjóanna við ísland, mundi stærra skipið vera miklu æski-
legra. — Vona að heyra meira frá yður.
Með virðingu yðar
G. J. Wheeler.
VI.
3. Bréf til G. J. Wheeler.
Liverpool 28. rnaí 1915.
Capt. Geo. J. Wheeler, Liverpool.
Heiðraði herra. — Hef meðtekið heiðrað bréf yðar frá 22. þ. m. — Tillög-
ur yðar um skipshöfnina hefi eg lesið og felst á þær. Heiztu mótorar sem vér not-
um í fiskibáta eru »I)an«, »AIpha«, »Skandía« og Gideon«. Af því að »l)an« og
»Alpha« eru mest notaðir, þá mun réttast að hafa annan þeirra í bátinn en hinn í
bjargdæluna.
Viðvikjandi verði skipanna, þá veit eg ekki hvað landsstjórnin mundi sjá
sér fært að láta, og vegna þess að bún mun ein skera úr þvi, þá væri bezt að fá
fulla lýsingu af báðum þeim skipum er þér hafið minst a. Fyrir mitt leyti mundi
eg heldur velja stærra skipið, því að það mundi vera færara um að standast storm-
viðrin við strendur Islands og fullnægja þeim kröfum sem gerðar yrðu til þess um
lengri tíma1). Með virðingu, j'ðar Matth. Þórðarson.
1) Lagið á skipum peim, sem á boðstólum voru og annað er kom til greina við nánari
athugun hér, þótti ekki viðeigandi. Ritstj.