Ægir - 01.11.1917, Síða 32
184
Æ G I R
Bj örg-unarskip.
Eins og sjá má af bréfum þeim, sem
fyrir rúmum 2 árum fóru á milli hr.
Matth. Þórðarsonar og hr. G. J. Wheeler.
þá heflr verið leitað eftir upplýsingum
viðvíkjandi sliku skipi. Að þráðlausa
íirðskeytastöð vantaði hér hlaut að draga
úr áhuga fyrir máli þessu, og auk þess
var þá stríðið komið í algleyming' Nú
er þráðlaus firðskeytastöð þegar tekin til
starfa hér og þykir því tilhlýðilegt að
birta álit sérfræðings í útbúnaði slikra
skipa hr. Wheelers, því hugmyndin má
ekki lognast út af. Sem stendur eru
framkvæmdir í þessa átt óhugsanlegar,
en von allía er, að nú fari að liða að
endalokum ófriðarins og þá fara menn
fyrsts að geta hreyft sig.
V erzlunarráð
og
sig'ling'aráð.
Verzlunar- og siglingaráð — Board of
Trade ætti að hafa verið hér og starfað
um nokkur undanfarin ár, af því hefði
ekki veitt. Nú er svo komið, að landið
. heflr fengið verzlunarráð, en málefni
siglinga landsins eru látin eiga sig enn
þá, og veitir þó sannarlega ekki af, að
einhverju þar væri veitt frekari eftirtekt
en gert er, því að sannasý að segja hlýt-
ur kæruleysi og hugsunarleysi um mál-
efni þau, er siglingar áhrærir, að vera
augljóst þeim, sem aldrei hafa á sjó
komið, hvað þá þeim, sem stunda at-
vinnu við siglingar.
Verzlunar- og siglingaráð ætlu hér að
vinna saman; þeir atvinnuvegir snerta
hvor annan svo, að samvinna þaf ætti
að styrkja en ekki veikja. Þetta ráð ætti
svo að setja fastar reglur og veita slys-
um og ástæðum til þeirra nákvæma eft-
irtekt, setja hleðslumerki á öll vöruflutn-
ingaskip, svo ekki væri þvi um kent
þegar skip sekkur, að það hafi farið af
stað of hlaðið, tiltaka verkahring hvers
skoðunarmanns skipa, láta siglingamann-
inn að eins athuga það, sem hann á að
þekkja, og skipasmiðinn það, sem iðn
hans gerir hann færan að dæma um, og
rugla engu þar saman. Það getur enginn
ætlast til þess, að þeir sem stundað hafa
siglingar og aldrei lært skipasmiði, geti
dæmt um smíðar. Eg fer í minn eiginn
barm. Við siglingar hefi eg fengist um 20
ár, og verið 1 vetur á Kaldnesslip á
Nötterö við Tönsberg, og hefi meira að
segja bók upp á það, en þó dytti mér
ekki í hug að taka að mér skoðunargerð
á skipi, og eiga að gefa vottorð um skip
og reiða. Un reiðann gæti eg ef til vill
eitthvað sagt, en um skrokkinn ekkert,
af þeirri ástæðu, að á því atriði skoðun-
argerðarinnar hefi eg ekki vit, og svo
munu flestir farmenn vera.
Síðastliðnar 5—6 vikur hafa nú 3 skip
farið héðan frá sjálfum höfuðstaðnum,
þaðan sem menningin á að streyma út
um alt land. Ekkert af þessum skipum
keinur aftur. »Kópur« sökk, »Trausti« og
»Beautiful Star« horfin með skipshöfn-
unum. Ýmsir dómar eru hér á sveimi
um orsakir til slysa þessara, og það er
einkum til þess að engum sé um kenl
þegar slys ber að höndum, að siglinga-
ráð verður hér að koma, sem hefir á
hendi öll málefni er viðkoma siglingum,
sem gengur að þvi með oddi og egg, að
öllum þeim reglum, sem það setur, sé
hlýtt, og forða þannig landinu frá þeirri
hneysu, sem lá i orðum færeyska skip-
stjórans í haust, er hann sagði: »Þið er-