Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1917, Side 33

Ægir - 01.11.1917, Side 33
Æ G I R 185 uð skrítnir menn, Islendingar. Þið seljið okkur ágæt skip, en kaupið af okkur rætla, sem enginn Færeyingur vill sigla á«. Nær þá siglingavit okkar ekki lengra? Nú er tími til þess að athuga þetta mál. Verzlunarráðið er stofnað og ætti að íhuga þetta, því að þetta snertir 'það. Félagið »Aldan« heldur nú vikulega fundi, og gerðu skipstjórar vel í að taka þetta til íhugunar. Stjórn Fiskifélagsins mundi eílaust veita sitt fylgi, og öllum sem við atvinnu við siglingar eru riðnir, ætti nú orðið að vera það ljóst, að hér þarf að taka í taumana og gera alt til þess, að málefn- um sjómannastéttarinnar sé viturlega kipt í lag, settar reglur, sem gera siglingar öruggari, láta þá menningu streyma frá Reykjavik, en ekki ýktar orsakir til hvarfs þriggja skipa frá sjálfum höfuðstaðnum, á sama mánuðinum. Eitt af verkefnum siglingarráðsins ætti að vera það, að hvert það skip sem skrá- sett er og er yfir 12 lestir, ætti um leið að fá einkennisbókstafi sina. þá ætti að höggva i lúkubitann, og þau 4 flögg ættu að fylgja hverju skipi. Þetta einkenni skipa væi’i svo sett i sjóalmanakið. Með þessum 4 flöggum, mætti svo mynda lít- ið signalkerfi, sem nota mætti i viðlög- urn hér við strendur landsins, ef uppá- stunga mín i siðasta thl. Ægis (Merkjasam- band milli skipa og lands) þætti of kostn- aðaisöm og vandasöm. A sinum tima verða slík rnerki höfð við Reykjavíkur- höfn, þvi að þau mundu bæði spai’a fé og óþarfa snatt, og ýmsar hafnir erlend- is hafa sin sárstöku merki, óháð hinu alþjóðlega merkjakerfi. Þar hafa menn fengið reynsluna fyrir sparnaðinum, og hið sama verður hér. í mótorbátum standa nú 10—11 milj- ónir króna, og að eins atvinnu á þeim hafa um 3500 menn, svo kemur annar skipastóll með sinum mönnum. Er þessi upphæð og mannfjöldi ekki þess vert, að þess sé röggsamlega gætt. Að eins með því að standa i stað, erum við á hraðri ferð aftur á bak, þegar öllum þjóðum i kringum okkur miðar áfram, bæði að sparnaði og ýmsu því, er gerir sjóferðir tryggari. Siglingaráö í sambandi við verslunar- ráð landsins, sem væri skipað þeim mönn- urn, sem vildu skilja og fylgjast með timanum og sleppa þeirri hugmynd, að alt væri gott eins og það nú er, vildu kynna sér framfarir annara þjóða á sviði siglinganna og beita því valdi, sem þeim væri i hendur lagt, ræddu málefnin ræki- lega og með skynsemi og vildu nota annara þjóða prentaðar leiðbeiningar og létu alt sem héti »ad haldaa vera fyrir utan málefnið, það ráð eða þær nefndir mundu vinna öllu landinu hið mesta gagn, tryggja atvinnu hæði til sjávar og lands og halda uppi heiðri sinum og þeirra stéttar, sem mest vinnur að við- skiftalífi og framleiðslu verslunarvöru Is- lands. Reykjavík, 1. nóv. 1917. Svcinbjörn Egilson. Vitar og’ sjómerki. Sandgerðisvitarnir. Vitarnir sýna ávalt fast rautt ljós, nema þegar sundið inn í Sandgerðishöfn er ófært, þá verður Ijós- unum i báðum vitunum breytt í föst hvít Ijós, sem verða látin loga meðan sundið er ófært, en því næst breylt aftur i rautt ljós. Eskiíjörður. Yst á Mjóeyrartanganum

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.