Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1918, Blaðsíða 10

Ægir - 01.01.1918, Blaðsíða 10
4 ÆGIR líkur að slíkt mundi komast í fram- kvæmd, vegna þess mikla koslnaðar sem slikur bátur kæmi til að hafa í för með sér. Kom fram tillaga, að menn legðu fram 2 kr. af hlut sínum til þessa fyrir- tækis ef það næði að komast lil fram- lcvæmda, tillagan samþykt af öllum er fundinn sóttu. Önnur tillaga borin upp og samþykt í einu hljóði. »Fundurinn felur stjórn Fiskifélags ís- lands að komast eftir því hjá lands- stjórninni hversu mikið fé hún mundi leggja fram til þessa báts gegn tveimur krónum af hverjum hlut úr öllum veiði- stöðvum við sunnanverðan Faxaflóa. Loks kom til umræðu nauðsyn sú er á því væri að fá lækni er dveldi yfir vetrarvertíðina í Sandgerði, var það öll- um áhugamál og eftir nokkrar umræður var kaupm. Lofti Loftssyni falið að út- vega hann og komast eftir hverskonar kjörum hann mundi ganga að. Meira kom elcki til umræðu, var því fundi slitið. Björn Hallgrimsson, Sig. Kjartansson, fundarstjóri. ritari. Samhljóða fundur var haldinn á Hvals- nesi 3. desember, virðist mér ekki taka því að afskrifa fundargerðina, því hún er í öllum greinum samhljóða þessari næst ofanrituðu. Fundinum var að eins tvi- skift til hægðarauka fyrir fundarmenn. Eg skal taka það fram að á fundinum bættust deildinni 9 meðlimir. Sig. Ivjartansson. þriðjudaginn 27. nóv. var fundur hald- inn í fiskifélagsdeild i Höfnum, hafði deildin ekki haldið neina fundi á haust- inu og því engin mál á reiðum hönd- um. Aftur á móti kom það fram við umræður manna á fundinum, að hér eins og annarsstaðar var nóg verkefni. Var fyrst rætt um fiskverðið og síðan um leiðar og lendingar, fór fundurinn að dæmi hinna deildanna að skipa nefnd i málin, er legði þau í tillögu formi fyrir deildina til samþyktar á fundi hennar næsta dag, þannig: Á fundi er haldinn var í fiskifélags- deildinni Framtíðin i Höfnum, 27. nóv. 1917, var borin upp svofeld tillaga: Fundurinn felur stjórn fiskifélagsins að komast eftir hjá landsstjórninni, hvort samningar hafa verið gerðir um fiskiaf- urðir á komandi ári, og sé svo, hvert verðið er. Tillagan samþykt með öllum atkvæðum. Þá var tekið til umræðu að nauðsyn- legt væri, að ljósker væru fengin á sund- merkin á Kirkjuvogssundí til leiðbein- ingar innsiglingu í dimmu. Næst var lagt fyrir fundinn að rann- saka lendinguna »Sandhöfn« til endur- bótar fyrir lendingarstað þegar með þyrfti, og eigi væri hægt að leita lands annars- staðar. Nefnd var kosin í þessi tvö mál. Ketill Ketilsson, Jón ólafsson, Magnús Magnússon, Friðrik Gunnlaugss., Guðm. Salómonsson. Við undirritaðir nefndarmenn, sem kosnir vorum á síðasta fundi deildar- innar til að koma fram með ákveðnar tillögur í leiðarmerkjamáli Kirkjuvogs- sunds, og endurbótum á »Sandhöfn«, leyfum oss að leggja til að félags- deildin skilji ekki við þessi mál, fyr en þeim er að fullu komið í framkvæmd. Framkvæmdum málanna sé hagað þannig: 1. Deildin fer þess á leit við stjórn aðal- deildarinnar í Reykjavik, að hún styrki þetta mál með því að leggja

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.