Ægir - 01.01.1918, Blaðsíða 25
ÆGIR
19
um i gildandi fiskiveiðasamþykt fyrir
Vestmannaeyjasýslu, eða árlega samþykt
formanna þar að lútandi.
Þannig samþykt á lögraætum aðal-
fundi Bátaábyrgðarfélags Vestmannaeyja
5. marz 1917.
jÉrlendur Árnason. Jón Jónsson.
Árni Filppusson.
Með leyfi hr. Árna Filippussonar er
reglugjörð þessi birt hér, sem sýnishorn
framfara i siglingum. ísfirðingar og má-
ske íleiri bygðarlög hér á landi, hafa
einnig reglugjörðir fyrir báta sina, en
Ægir hefir ekki átt kost á að birta þær,
og er þó slíkt bending til þeirra, sem
eitthvað vilja laga hjá sér — og allar
líkur eru til, að keppni komi i fiski-
menn jafnt í þessu sem í sjósókn, því
svo er hún öruggust. að öllum varúðar-
reglum sé fylgt; það lýsir skynsemi en
er ekki vottur hræðslu, sem þvi miður
hefir verið dómur um ýmsa, sem var-
lega hafa viljað fara á sjónum og skilið
ábyrgð þá, sem á þeim hvíldi.
Enn er engin reglugjörð komin um
fólksflutninga á mótorbátum, sem t. d.
i haust hafa verið miklir, en slíkt þarf
að takmarka, því það er stórhættulegt,
og það, sem útlendingar sjá af þvi tagi
frá skipum sínum á höfnum landsins,
miðar ekki til þess að afia oss þess á-
lits í augum framandi manna, sem vér
erum í raun og veru að keppa að, þvi
eftir erlendu sníðum vér í ílestu stakk
okkar og viljum fylgja menningarþjóð-
um heimsins í öllu góðu, og eigum því
ekki visvitandi að styrkja ranga dóma
þeirra um okkur og gefa þeim ástæðu
til að bera kæruleysi og agaleysi okkar
út. Sýndi það kjark, dugnað eða góðvild,
að fylla báta af fólki, langt fram yfir
alla skynsemi, þá væri slíkt afsakanlegt,
en þar eð það aðeins lýsir fyrirhyggju-
leysi og kæruleysi, ætti að takmarka
slíkt.
Véisijóraprój.
Við mótorprófið, sem haldið var 20.
des. 1917, tóku þessir menn próf:
Pétur Einarsson . . . . . 13
Guðm. Guðlaugsson . , . 14
Ólafur Jóhannsson . . . . 10
Lárus Sveinsson. . . 15
Jónas Kristmundsson . . . 12
Jörgen E. Helgason . . 19
Helgi Helgason . . . . 11
Björn Eiriksson . . . . . 13
Sigurbjörn Ólafsson . . . 11
Pétur J. Vermundsson . . 15
Erlendur Helgason . • 13
Helgi Halldórsson . . , . 16
Magnús Kristófersson . . . 12
Guðm. Guðjónsson. . • . 14
Guðm. Kristjánsson . . 15
Ingvar Einarsson . . • . 17
Erlendur Jónsson . . # . 16
Guðjón Benediktsson . 19
Magnús Jónsson. . . • . 15
Friðleifur Friðriksson. . . 12
ólafur Jóhannsson . . . . 16
Valgeir Magnússon . . , . 15
Sigurður G. I. Guðmundsson 18
Olgeir Vilhjálmsson • • 13