Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1918, Síða 24

Ægir - 01.01.1918, Síða 24
18 ÆGIR steinolíu fyrir hvert hestafl vélarinnar, 20 potta af áburðarolíu og til vara þá parta vélarinnar, sem hættast er við að bili, svo sem gaskúlu, lampa, brennara og loftspeldi. Enn fremur algengustu verkfæri, sem vélinni fylgja, og öxi. Hver sá bátur, sem hefir mótor í lok- uðu rúmi, skal hafa meðferðis öílugt slökkvitól, sem tekið er gilt af SamábjTgð íslands, og skal það haft einhversstaðar fyrir utan vélarúmið, þar sem auðvelt er að ná til þess. 1 vélarrúminu mega ekki vera nein slík tæki, sem eldur er notaður við, að undanteknum lömpum þeim, sem nauðsynlegir eru við rekstur og gæzlu mótorsins. Hverjum róðrabát skal fylgja áreiðan- legur áttaviti og öll venjuleg fargögn. Fyr en ákvæðum þessara greinar og 4. gr. er fullnægt, má félagsstjórnin ekki gefa út ábyrgðarskírteini. 2. gr. Hverjum mótorbát sem í ábyrgð er, skal lagt á höfninni á þeim stað og á þann hátt, sem hafnarvörður mælir fyrir, og við þær festar, sem hann álítur óvggj- andi. Utan hafnar má enginn mótorbátur. undir neinum sjálfráðum kringumstæð- um, vera skipaður færri mönnum en tveimur, og sé annar þeirra fær um að stjórna mótorvélinni. Þegar mótorbátur liggur utan hafnar við strendur landsius eða úteyjar, skal bifvél hans ávalt vera í gangi. 3. gr. Virðingamenn eða vai'avirðingamenn félagsins skulu fyrri hluta vetrar ár hvert skoða og virða alla þá báta, sem trygðir eru og tryggast eiga í félaginu. Einnig skulu þeir á öðrum tíma árs skoða og virða hvern þann bát, sem þá er æskt ábyrgðar félagsins á. Ennfremur skulu þeir framkvæma aukaskoðanir og virð- ingar til skaðabóta þegar þeir eru til þess kvaddir aí félagsstjórninni. Virðingarmenn skulu og ákveða til hvers flokks hver bátur skuli teljast, samkvæmt 9. gr. laga félagsins og með hliðsjón af 11. gr. þeirra. Þeir skulu virða hvern bát með tilheyrandi svo rétt og sanngjarnlega sem þeim er unt, og þeir vilja vinna eið að, ef krafisí verður. Virðingamenn skulu rita í gjörðabók, er félagsstjórnin löggildir, nákvæma lýs- ingu á hverjum bát, ásamt áhöldum hans, virðingu og flokkseinkenni, svo og nöfn eigenda og formanns. Að loknu mati bátanna skulu virðing- armenn afhenda stjórn félagsins gjörða- bókina. Hlutaðeigandi útgerðarmenn eru skyldir að láta i té á sinn kostnað alla þarílega aðstoð við starf virðingarmannanna. 4. gr. Formaður hvers mótorbáts, sem fé- lagið tekur í ábyrgð, skal sanna fyrir fé- lagsstjórninni að hann hafl rélt til for- mensku eða skipstjórnar, samkvæmt lög- um um atvinnu við siglingar nr. 42, 3. nóvember 1915, 2. til 4. gr. sbr. 19. gr. 5. gr. í ósjálfráðum forföllum formanns verður sá, er koma á i hans stað, hvort heldur er í ferð til meginlandsins eða annara sjóferða, að fullnægja ákvæðum þeim, sem sett eru í 4. gr., innan viku frá því formaðurinn forfallaðist. Að öðr- um kosti fellur úr gildi ábyrgð félagsins. 6. gr. Mótorbátar þeir, sem félagið tekur til ábyrgðar. skulu bundnir við þau tak- mörk um sjóferðir, sem mælt er fvrir

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.