Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 16

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 16
106 ÆGIR hann 31. desember 1915 og varð þeim ekki barna auðið. Hannes heitinn var áhugamaður um alt, er hann lét sig varða, og félagslyndur. Hann var skapstillingarmaður mikill og hinn rólyndasti þá er mest blés á móti. Marga vini átli hann en engan óvin. Ég þekti Hannes heitinn um 20 ára skeið og mat hann æ meir eftir því sem viðkynn- ing okkar varð nánari og við liöfðum meira sarnan að sælda. Á. P. Nýr mótor fyrir stór skip og fiskiskip. Á siðustu árum heflr nýr mótor komið á markaðinn, sem hefir vakið afarmikla eftirtekt á meðal sérfræðinga í mótor- smíðinu. Þessi vél er smiðuð eftir hinum allra nýjustu uppgötvunum og má segja með sanni að hún uppfylli hinar miklu kröfur sem gerðar eru til skipamótora. Mótorinn heitir »Densil«, er tvígengis- mótor með glóðarhaus, og brennir hrá- olíu, en smíðaður með allmörgum end- urbótum, fram yfir það sem áður hefii þekst. Fjöldi hinna beztu dönsku mótor- fræðinga hafa reynt vélina á Densil- smiðjunni í Aalborg, og hefir það ómót- mælanlega sýnt yfirburði bæði með tilliti til tryggilegs gangs og olíusparnaðar. Densil hefir enga vatnsinnspýtingu og gerir það hann sérstaklega góðann til fiskiskipa, jafnframt því að vélin endist betur og hægra að stjórna henni. Við prófanirnar, eins og líka í brúkuninni hefir þaö sýnt sig að Densil-vélin vinnur óaðfinnanlega með öllum mótorolíuteg- undum, sem til eru á markaðinum. Til dæmis hefir hin þykka Diesel mótorolía verið brúkuð á Densil-vélina með sérlega góðum árangri. Mótornum má ennfremur telja það til síns ágætis, hvað alt er einfalt og trygt; eru stærðirnar á öllum mótorstykkjum þannig, að mótorinn uppfyllir kröfur allra viðurkendra ílokkunarfél. (klas- siíicationsselskaber). Hið örðuga vandamál, að smiða lirá- oliumótor sem án vatnsinnspitingar þolir 20—25°/o yfirkraft, virðist hér vera leyst. Sömuleiðis getur mótorinn frátengslaður skrúfunni gengið í ótakmarkaðan tíma án þess að brúka lampa, því brenslu- rúmið og glóðarhausinn er svoleiðis út- búið að hann heldur sér ávalt jafn lieitur. Gangráðurinn (Regulatoren) er alger- lega innilokaður, og ganga allir hreyfan- legir partar í olíubaði, svo niðslan er afar lítil, stillingin er bygð á þyngdar- lögmálinu svoleiðis, að við hvern snún- ing að eins innspýlist nægileg olía, hvort sem áreynslan er mikil eða lítil á vél- inni. Með einföldu handhjóli er hægt að breyta snúningshraða Densil-vélarinnar innan allra hugsanlegra takmarka. Densil vélin er smíðuð í mismunandi stærðum frá 10—240 H.K., og getur feng- ist með þrýstiloftsskiftingu sem er svo- leiðis að mótorinn er með þrýstilofti látinn snúast á báða vegu, og minni vélar með hreyfanlegum blöðum eða hjólaskiftingu, sem er samanbygð með undirstöðuplölu vélarinnar. í öllum til- fellum er skitt með einu handhjóli. Smurningin á Densil-vélinni er óvana- lega góð og ábyggileg, gerist hvað snertir sivalninga (cylindere) og veifur (krum- tappa með þrýstismurningstæki með 4 kerfum (sæt), tvöföldum dælum. Allar aðallegur eru með hringsmurningu og lausum legum, sem má sverfa saman þegar þær slitna. Til ennþá freltari trygg-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.