Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1926, Blaðsíða 17

Ægir - 01.01.1926, Blaðsíða 17
ÆGIR 9 Þessu næst var geDgið til stjórnarkosn- inga og kosningu hlutu: Friðrik Steinsson forseti með 4 atkv. Hermann Þorsteinsson ritari með 6 atkvæðum. Marleinn Þorsteinsson varaforsefi með 5 atkvæðum. Stefán P. Jakobsson vararitari með 6 atkvæðum. Næsta Fjórðungsþing var ákveðið að halda á Rej'ðarfirði. Fundarbók upplesin og samþykt Pinginu því næst slitið. Ár 1925, þann 12. desember, var 5. Fjórð- ungsþing fiskideilda Norðlendingafjórðungs setl og haldið á Akureyri, kl. 1 síðdegis. Forseti: Karl Nikulásson selti þingið og nefndi lil skrifara Björn Gunnarsson. Pessir fulltrúar voru mæltir: Forseti Karl Nikulásson fyrir Akureyr- ardeilda. Skipstjóri Stefán Jónasson fyrir Akur- eyrardeild. Útgerðarmaður Björn Gunnarsson fyrir Grenivíkurdeild. Vélfræðingur Jón Sigurðsson fyrir Hrís- eyjardeild. Síldarmalsmaður Kristján Pálsson fyrir Hjalteyrardeild. Formaður Pórður Eggertsson fyrir Húsa- víkurdeild. Fyrv. bóndi Árni Kristjánsson fyrir Raufarhafnardeild. Utgerðarmaður Guðmundur Pétursson fyrir Siglufjarðardeild og enn fremur er- indreki Páll Halldórsson, Svalbarðseyri. I. Erindrekinn skýrði frá helstu fram- kvæmdum deildanna á þessu ári. Skýrði frá því, að þrjár nj'jar deildir helðu bæst við; vonuðu þingmenn að enn meira líf og framkvæmdír mundi færast í félags- skapinn á n. k. ári, er svo miklir og góðir kraflar höfðu bæst við. II. Pá var tekið fyrir Vélaábyrgðar- Jélagið. Tók fyrstur til máls erindrekinn, Páll Halldórsson, og skýrði málið fyrir nefndarinnar hönd, sem hafði haft þetta mál með höndum; áleit hann að gamla nefndin hefði nú þegar lokið starfi sínu að mestu leyti. Máliö var talsveit rælt, og að lokum óskuðu fundarmenn þess, að gamla nefndin héldi áfram starfi sínu, þar lil að mál þetta væri til lykta leitt á sem bestan hátt fyrir bátaeigendur, félag stofn- að og lög sett; samþykt í einu hljóði. III. Síldartollur. Um mál þelta var tals- vert rælt; kom fram hjá ræðumönnum, að þessi tollur væri einna ósanngjarnastur allra tolla gagnvart verðmæti hverrar síldar- tunnu, lækkandi verði síldar og óstöðug- leika verðsins. Kom fram svohljóðandi tillaga: »Vegna gengishækkunar og lækkandi markaðsverðs yíra skorar fjórðungsþingið á Fiskifélag íslands að vinna að því, að útflulningstollur á síld veiði lækkaður svo að hann komist í samræmi við úlflutn- ingsgjald af öðrum íslenskum afurðum«. Samþykt í einu hljóði: IV. Fiskimat. Forseti reifði það mál, og kom yfirleitt fram hjá fundarmönnum, að kaupgjald það, sem matsmenn hefðu væri alt of hátt nú, þó það kanske hefði verið réttmætt á dýrtíðarárunum; fiskverð

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.