Ægir - 01.09.1930, Blaðsíða 7
ÆGIR
193
þau o. s. frv. Félag þetta er enn til, en
er orðið alláhrifalítið, enda gat það ekki
verið sú undirstaða sem hægt væri að
kyggja á þegar gera átti stórfeldar til-
lögur eða umbætur á sviði fiskiveiðanna.
Það fór þar fljótt svo, að stofnuð var
Fiskimálaskrifstofa ríkisins (Fiskeridi-
rektoratet) 1906, sem fékk í sinar hend-
uf umsjón og eftirlit með þeim málum,
er fiskiveiðarnar snerta, bæði vísinda-
lega og praktiska, og hefur fiskimála-
stjórnin norska nú í sinni þjónustu fjölda
starfsmanna, sem starfa að vísindalegum
tilraunam á sviði fiskiveiðanna, og að
fiskirannsóknum. Sömuleiðis heyrir mat
sjávarafurða, t. d. fisks og lýsis undir
hana, sömuleiðis undirbýr hún þau mál
er fiskiveiðarnar varða undir ríkisþingið,
eða það leitar umsagnar hennar áður en
ákvörðun er tekin.
Þrátt fyrir þetta þykir ekki Norð-
toönnum fiskiveiðamálin enn þá nægi-
lega aðgreind frá öðrum atvinnumálum,
°g eru nú á seinni árum töluvert há-
værar raddir um að fá sérstakt fiski-
ruálaráðuneyti.
Þrátt fyrir þetta eru í Noregi mörg
mjög áhrifamikil félög, sem starfa að
samheldni meðal fiskimanna, eða sam-
kaupum og sölu á afurðum þeirra og
vil ég i því sambandi benda á ýmislegt sem
áður hefir verið skrifað í Ægir, t. d. Kr.
•lónsson bls. 9. 1. tbl. 1927 og Arngrím-
Ur Bjarnason bls. 18, 1. tbl. 29.
Sama er að segja um Danmörku, og
eru þó ekki fiskiveiðarnar eins þýðing-
armiklar fyrir Dani hlutfallslega, sem
°kkur, að þrátt fyrir það þó að þeir
hafi mjög umfangsmikinn félagsskap meðal
fisltimanna sinna, þá hafa þeir samtsér-
stakan skipaðan fiskimálastjóra, sem er
^únaðarmaður stjórnarinnar i fiskiveiða-
juslum og hefur umsjón með fram-
væmdum á þeim, en þó hafa Danirnú
nýlega stofnað sérstakt siglinga- og fiski-
málaráðuneyti, en hingað til hefur fiski-
málastjórinn og störf hans heyrt undir
landbúnaðarráðuneytið.
1 þessu eins og svo mörgu öðru get-
um við farið nokkuð eftir reynzlu ná-
grannaþjóðanna, enda höfum við á mörg-
um sviðum, sem ekki eru þýðingarmeiri,
gengið þessa braut, t. d. er sérstakur
fræðslumálastjóri fyrir fræðslumálin,
vitamálastjóri, vegamálastjóri o. s. frv.
sem heyra beint undir tilsvarandi skrif-
stofur stjórnarráðsins, sem svo hafa yfir-
umsjón hver sinna mála, og eru þeim
kunnugir, enda tekið tillit til umsagna
þeirra bæði af stjórn og þingi. Það er
því einkennilegt, enda alveg óafsakanlegt
að láta jafnalvarleg og þýðingarmikil
mál eins og okkar aðalatvinnuveg vera
eins afskiftinn, eins og nú er.
Eg veit að margir lita svo á, aðFiski-
félagið geti verið og sé einskonar fiski-
málaskrifstofa ríkisins, en svo er ekki,
enda hefur það komið fram iðulega bæði
á Alþingi og utanþings, t. d. hafði vita-
málastjóri á sínum tíma samið og lagt
fram frumvarp um vitabyggingarkerfi
landsins, en þó gert ráð fyrir því í lög-
unum að rikisstjórninni væri heimilt að
breyta um legu vitanna eftir því sem
hentugra kynni að þykja i samráði við
vitamálastjóra og Fiskifélag Islands, þetta
fellir ríkisstjórnin niður seinna, þegar
hún leggur málið fyrir Alþingi, með
þeim ummælum, »enda hálfóviðkunnan-
legt að lögfesta einkafélag sem ráðunaut«,
(Stj.t. 1923 þskj. 19). Þetta er alveg rétt-
ur skilningur hjá ríkisstjórninni, félagið
er eftir eðli sínu einkafélag, þó að það
hafi allar sínar tekjur frá rikinu, og er
þar af leiðandi áhrifaminna i starfi sínu
en annars væri, og kemur þjóðinni þar
af leiðandi að miklu minni notum en
ella, og er það merkilegt að útgerðar-