Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1930, Blaðsíða 24

Ægir - 01.09.1930, Blaðsíða 24
210 ÆGIR 3. gr. — Fiskveiðasjóði er heimilt að gefa út handhafavaxtabréf, allt að l'/j milljón kr., sem tryggð skulu með stofnfé sjóðsins og ábyrgð ríkissjóðs. Fjármála- ráðherra setur nánari reglur um stærð bréfanna, útlit, útdrátt og aðra meðferð þeirra, í reglugerð sjóðsins. Ríkisstjórn- inni er heimilt að taka lán til kaupa á slíkum bréfum, allt að l’/s milljón kr. enda skal svo til haga um vexti bréf- anna, verð þeirra og tímalengd útlána, að ríkissjóður verði skaðlaus af. 4. gr. — Fé Fiskveiðasjóðs má ein- göngu lána til: a. Skipakaupa, allt að 50 rúmlesta. Þó má veita lán til kaupa á stærri skipum, ef fé er fyrir hendi. b. Stofnsetningar iðjufyrirtækja i sam- bandi við fiskveiðar, svo sem til nýtingar fiskiúrgangi, ishúsa og kælihúsa. 5. gr. — Lán til kaupa á nýjum skip- um má veita til 12 ára, en þeim mun skemur, sem nemur fyrningu, til kaupa á eldri skipum. Skipakaupalán mega nema allt að helmingi kaupverðs, þó ekki yfir 30000 kr. til eins lánþega. Veita má þó sam- vinnufélögum fiskimanna lán til skipa- kaupa allt að 30000 kr. á skip. Lán til iðjufyrirtækja má veita til 15 ára, og mega þau nema SA stofnkostn- aðar fyrirtækjanna. Þó skal lán i einn stað eigi fara fram úr 35000 kr. Vextir lána samkvæmt grein þessari skulu ekki að jafnaði fara fram úr 5V»°/o, og greið- ast þeir fyrirfram. Hver lántakandi Fisk- veiðasjóðs greiðir l°/o af lánsupphæð í varasjóð deildarinnar um leið og hann tekur lánið. 6. gr. — Lán úr Fiskveiðasjóði má veita gegn þessum tryggingum: a. Gegn fasteignarveði, allt að 3/s af virðingarverði þess, ef ekki hvíla neinar skuldbindingar á veðinu á undan veðrétti sjóðsins. b. Gegn fyrsta veðrétti í skipum, allt að helmingi virðingarverðs, enda gangi þá veðréttur sjóðsins fyrir öðrum tryggingum i skipunum, öðrum en lögveði. 7. gr. — Heimilt er stjórn Fiskveiða- sjóðs að leggja árlegt aukagjald, sem nemi allt að 1i*°/o, á lán með veði í skip- unum. Gjald þetta skal lagt í sérstakan sjóð, sem ávaxtast eins og varasjóður, og skal því varið til að bæta Fiskveiða- sjóði þann halla, sem hann kann að bíða vegna sjóveða í veðsettum skipum. Nánari fyrirmæli um þetta skulu sett í reglugerð Fiskveiðasjóðs. 8. gr. — Leggja skal í varasjóð, auk stofngjalds lánþega eftir 5. gr., 50°/o af árlegum tekjuafgangi Fskveiðasjóðs, þar til varasjóður nemur 20°/o af útlánum sjóðsins, en þaðan af svo mikið, sem þarf til að halda því hlutfalli tryggingar. Varasjóð skal ávaxta á öruggum stað, og má eigi festa hann í áhættulánum. 9. gr. — Eignir þær, er Fiskveiðasjóð- ur tekur að veði, skal á kostnað lán- þega virða á þann hátt, er nánar verður tiltekið í reglugerð sjóðsins. í reglugerð- inni má meðal annars ákveða, að stjórn Fiskveiðasjóðsins megi tilnefna þá menn, er skuli framkvæma virðingarnar. Stjórn sjóðsins getur hvenær sem er heimtað skilríki fyrir því, að veðsettum eignum sé vel við haldið og að veðið hafi ekki rýrnað. 10. gr. — Verði eigendaskipti að eign, sem veðsett er Fiskveiðasjóði, þá er stjórn sjóðsins heimilt að heimta lánið endurgreitt að fullu, eða að nokkru leyti, ef henni þykir ástæða til, endaskalbæði seljanda og kaupanda skylt að tilkynna sjóðstjórninni eigendaskiptin þegar i stað. 11. gr. — Verð húsa á fasteignum, er

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.