Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1930, Blaðsíða 21

Ægir - 01.09.1930, Blaðsíða 21
ÆGIR 207 Norska fiskimatið. Verzlunarráðuneytið norska sendi í byrjun júlímánaðar, yfirfiskimatsmann Edward Larsen til Spánar og Portúgals til þess að ferðast um, með fiskifulltrúa Axel Tingvoll og kynna sér markaðs- fyrirkomulag á hinum ýmsu stöðum og heyra hljóð í mönnum, er norsku fisk- farmarnir komu til þessara landa. Eeir fóru til Vigo, Oporto, Lissabon, Sevilla, Valencia og Malaga, og heimsóttu alls, um 40 fiskikaupmenn. »Sunnmörspostena hefir átt tal við Larsen fiskimatsmann og beðið hann að skýra frá ferðinni og árangri hennar, og hvernig markaðsútlitið sé fyrir norska saltfiskinn og hvernig hann líki. Hann segir svo frá: »Af öllum þeim horgum, sem ég heimsótti eru það að- eins Vigo, Oporto og Bilbao, sem halda fast við norska fiskinn. Á þessum stöð- um sækjast menn mikið eftir hinum svo- uefnda »Somerfisk« (eiginlega sunn- uiörsfiski). »Somerfiskurinn« er blóðg- aður og þveginn áður en hann er saltaður, er hvítur og fallegur útlits. Lofots og Finnmerkurfiskurinn er óblóðgaður og ðþveginn, er gráleitur, þurr og svo ljót- ur útlits, að Spánverjar og Portugalar þola vart að sjá hann. Ár frá ári verður hann óseljanlegri vara því smákaupmenn haupa hann að eins út úr neyð. Nú er íslenzki fiskurinn, sem er fal- legi'i en sá norski að ryðja sér rúm, hæði í Lissabon og Vigo og sala okkar verður æ minni. Meðan ég dvaldi þar, heyrði ég oft, að smásalarnir spurðu eftir islenzkum fiski og sögðu um leið við haupmenn: »ekki hinn ljóta norska fisk, uieðan hinn fallegi, fslenzki fiskur er á boðstólum«. Blaðamaðurinn spyr fiskimatsmanninn Larsen . . . »Eru þá íslendingar að sigra í samkeppninni? »Já«, segir hann. Inn- an skamms gera þeir það ef við ekki sjáum að okkur. Kaupendur vilja »Som- erfisk« og gætum við látið þá fá allt, er þeir þurfa af honum, mundu þeir ekki kaupa íslenzkan fisk. En ástandið eins og það er nú, krefst þess, að farið sé að blóðga og þvo allan fisk áður hann er saltaður og aðrar og betri þurkunar- aðferðir, séu viðhafðar. Útflytjendum er hér einnig nokkuð um að kenna. Þeir hafa drýgt mikla synd er þeir hafa boðið fram og selt »Somer«, sem hefir verið óblóðgaður og óþveginn. Hefir sú hegðun og aðferð vakið van- traust innflytjendanna. Norskan fisk sáum við í Bilbao, sem merktur var nr. 1, sem að engu leyti var betri en islenzkur fiskur á Portú- gals-markaði, sem merktur var nr. 2. í Lisabon, munu Islendingar ná þeim fiskmarkaði, sem við höfum nú. Heildaráhrif ferðar okkar voru, að norski fiskurinn, að »Somer« untantekn- um, er mjög slæm vara og við skömm- uðumst okkar oft, er við heyrðum dóm manna um fiskinn okkar. Breyting á þessu ástandi verður að gera, en hún verður stærra Grettistak, en nokkru sinni hefir verið lyft í Noregi. Að því verki verða eigi að eins fiskimenn í Nordland og Finnmörk að vinna, held- ur einnig allir þeir, sem hafa fiskverk- un með höndum. Fiskverkunaraðferð sú, er við höfum nú, er 100 ár á eftír tímanum og breyt- ing á þessu ástandi verður að koma, áður en allt er of seint. »Vigo, Oporto og Lissabon eru þeir einu meiriháttar bæir, þar sem eigi eru kælihús«, segir fiskimatsmaður Larsen. Fiskur, sem til þeirra staða er sendur, verður því að vera fullþurr.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.