Ægir - 01.09.1930, Side 8
Í94
ÆGIR
menn og fiskimenn þessa lands, skuli
ekki fyrir löngu hafa gert háværar kröf-
ur um að þessum málum væri komið í
öruggara og fastara horf, en það hefur
blekkt menn um of, að margur hefur
staðið í þeirri meiningu, að grundvöllur
Fiskifélagsins væri öruggari, enda mundu
tillögur í þá átt koma þaðan, en þess
er ekki að vænta, enda vantar áhuga
deilda félagsins fyrir þessum málum yfir-
leitt, sem bezt sézt á því, að síðasta
Fiskiþing dæmdi sjálft 8 fulltrúa ólög-
lega kosna af 12 fulltrúum sem sæti áttu
á þinginu.
f*á er það ennfremur einkennilegt að
Alþingi, sem undanfarandi heíur veitt
— eftir okkar mælikvarða — Fiskiíélag-
inu stórar upphæðir árlega, skuli ekki
hafa skift sér frekar af þeim málum,
eða tryggt það að fé og starfskraftar fé-
lagsins kæmu að sem beztum notum.
Væri stofnuð fiskimálaskrifstofa ríkis-
ins, sem hlýtur að verða fyr eða síðar,
og má helzt ekki dragast lengi, þar sem
árlega verða jafn miklar framfarir og
breytingar á sviði fiskiveiðanna og und-
anfarandi hefur verið, þá ríður á að
tryggja það samband sem bezt á milli
ríkisins og hinna einstöku starfandi deilda
og félaga. Heppilegast teldi ég að breyta
Fiskifélaginu og stjórn þess í Fiskimála-
skrifstofu ríkisins og kæmi þá fiskimála-
stjóri í staðinn fyrir forseta félagsins, en
deildirnar mynduðu þá fiskiráð við hlið
hans, yrði þá Fiskiþingið ráðgefandi
stofnun líkt eins og er nú bæði í Noregi
og Danmörku.
Breyting í líka átt og hér er farið fram
á, hefði að minnsta kosti fyrst um sinn,
engan aukinn kostnað i för með sér fyrir
ríkið, því það fé sem Fiskifélagið fær
frá ríkinu og greiðir nú starlsmönnum
sinum, er nægilegt til kaupgreiðslu þess-
ara starfsmanna sem hér er gert ráð
fyrir, en með þessu fyrirkomulagi ætti
formaður fiskmálanna (fiskimálastjórinn),
betri aðstöðn til að koma áhugamálum
fiskimanna og útgerðarmanna í fram-
kvæmd, þar sem hann verður starfs-
maður ríkisins, og því síður hægt að
ganga framhjá tillögum hans, heldur en
með núverandi fyrirkomulagi.
Það voru norsku fiskimennirnir og
fiskifélagsdeildirnar, sem börðust fyrir
því að koma þessari breytingu á þar og
hefur það gefist mjög vel, og ég efast
ekki um að sama mundi verða hér,
enda er þörfin hér enn þá brýnni, því
að þó að Norðmenn eigi mikið undir
fiskiveiðum sínum, þá eru þær þó enn
þá meira lífsskilyrði fyrir okkur, þar
sem atvinnuvegir okkar eru enn þá fá-
breyttari en þeirra, og því enn þá meira
átt á hættu fyrir okkur meðan fyrir-
komulagi þeirra er ekki komið í tryrggt
horf.
Nú fer að nálgast sá tími að deildir
Fiskifélagsins fara að starfa, og væri því
vel farið að þær tækju þetta mál til at-
hugunar og létu svo írá sér heyra um
það, sömuleiðis verða fjórðungsþing lík-
lega haldin í haust og má því vænta til-
lagna frá þeim í svona máli.
K. B.
Veiði Færeyinga við Grænland.
Færeyjaskipin, sem stunduðu veiðar
við Grænland í sumar, hafa fiskað ágæt-
lega. Þann mánaðartíma, sem talið er,
að þau liafi verið á veiðum, varð afli
þeirra samtals rúmar 3 milliónir þorska.
Flutningaskip þau, er tekið hafa móti
aflanum við Grænland, eru nú á heim-
leið. (10. sept.).