Ægir - 01.09.1930, Qupperneq 11
ÆGI R
197
sem áður var skipstjóri á »Solör« og er
hann einn af þekktustu og dugmestu
formönnum Björgunarfélags Norðmanna.
G. S.
Atvinnuleysið í Ameríku.
Atvinnuleysið var mjög mikið í Amer-
iku síðastliðinn vetur. Eftir kauphallar-
hrunið í október voru ýmsar nefndir
skipaðar til þess að ráða bót á þessu.
Framleiðslunni átti að reyna að halda
í sama horfinu, og yfir höfuð var mikið
um það talað, að leggja mikið í sölurn-
ar, bæði af hálfu þess opinbera og frá
einstaklingum.
En eigi leið á löngu áður en það kom
i ljós, að erfitt myndi og jafnvel óger-
legt, að koma þessum ráðagerðum í
framkvæmd. Að vísu er ekki hægt að
segja um með vissu, hve atvinnuleysi er
^ikið í Ameríku, en gert hefir verið
ráð fyrir, að þar mundu ekki vera færri
en 7—8 milliónir manna atvínnulausir.
1 einstaka borgum hefir þetta verið
rannsakað. í Boston var til dæmis í
aprílmánnði s. 1. 40 þús. atvinnulausir af
400 þús, uppkomnum íbúum. Bendir
Þessi tala á það, að hér sé mikil alvara
a ferðinni, og má geta þess til saman-
hurðar, að í Þýzkalandi eru atvinnulaus-
lr ekki taldir nema 5°/o, °g er ástandið
Þar þó talið alvarlegast í Norðurálfunni.
^ Cincinnati voru ca. 17 þús. atvinnu-
^ausir af V* millión ibúum, og i Chigaco
er talið, að atvinnuleysi hafi aldrei verið
^eira en nú siðan 1914.
Bezta sönnun þess, að hér sé með
rétt farið, er það, að iðnaðarmenn í
bæjunum eru farnir að snúa sér að land-
búnaðarvinnu. 1. apríl 1930getur »Bureau
°f Agricultural Eeonomics« þess, að
framboð eftir landbúnaðarvinnu hafi ver-
ið mun meiri en eftirspurnin, í norður-
ríkjunum t. d. 13°/o og í vesturríkjunum
21°/». Síðan 1923 hefir kaupið þó ekki
verið jafn lágt og nú; sumsstaðar í suð-
urríkjunum ekki nema 34 doll. á mánuði.
Formaður American Federation of
Labour skýrði svo nýlega frá, að at-
vinnuleysistalan hefði stöðugt farið hækk-
andi siðan í ágúst í fyrra, og ekki útlit
fyrir að þetta færi nokkuð batnandi. En
þrátt fyrir þelta er þó enginn áhugi fyrir
atvinnuleysistrj^ggingum, jafnvel þó ýms-
ir þjóðmegunarfræðingar telji þá leið
heppilega. Eru Ameríkumenn hræddir
um, að það muni hafa skaðleg áhrif á
atvinnulífið, ef þær tryggingar verða al-
rmennar. Aflur á móti ræða menn þa
ýmsar aðrar tillögur með áhuga, svo
sem 5 tíma vinnudag, að nota afgang
af siðasta árs framleiðslu, að mynda at-
vinnuleysissjóð og margt lleira. En allt
þetta hefir orðið að litlu liði, þvi eins
og áður hefir verið frá skýrt, fer atvinnu-
leysið vaxandi, og horfurnar allt annað
en glæsilegar í þessa átt.
(Úr Tidskrift for Industri).
„Hænir*.
Eins og getið er um í síðasta tbl.
»Ægis« strandaði mótorskipið »Hænir»
(áður »lsbjörn«) við Rifstanga, aðfara-
nótt hins 25. ágúst s. 1. Skipinu náði
varðskipið »Ægir« út 8. september og
fór með það til Akureyrar. Verður þar
athugað, hve miklar skemmdir hafa orðið.
Vátryggt var það hjá »Samtryggingu
íslenzkra botnvörpunga«.