Ægir - 01.12.1930, Qupperneq 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
23. árg.
Reykjavík — Des. 1930.
Nr. 12.
Fjórðungsþing
Sunnlendingafjórðungs.
Ár 1930, föstudaginn 5. desbr., var
fjórðungsþing Fiskifélags íslands, fyrir
Sunnlendingafjórðung, sett i Kaupþings-
salnum í Reykjavík, og hófst kl. ll/s
siðdegis.
Ágúst Jónsson, sem síðasta fjórð-
ungsþing hafði kosið til forseta, ávarpaði
fundarmenn með nokkrum orðum, bauð
þá velkomna og lýsti þingið sett Að því
loknu bað hann varaforseta (Þ. G.) að
taka sæti sitt með því að liann þyrfti að
tnla nokkur orð. Gerði hann grein fyrir
Því, að á síðasta Fiskiþingi hefðu heyrst
raddir í þá átt, að seta hans sem forseta
a fjórðungsþingi mundi vera ólögmæt.
Kvaðst sízt vilja gegna þessu starfi, ef
lögmæti kosningar sinnar væri vefengt,
°g óskaði að máli þessu yrði ráðið til
tykta áður en þingið tæki til starfa.
Um mál þetta spunnust allmiklarum-
ræður.
Áður en máli þessu væri ráðið til lykta,
v°ru skipaðir i kjörbréfanefnd þeir ól-
ufur B. Björnsson og Tómas Snorrason.
Eftir að kjörbréfanefnd hafði lokið
ftörfum sínum, tók framsögum. nefndar-
'nnar Ól. B. Björnsson til máls, og gat
Þess, að nefndin hefði ekkert að athuga
'fö kjörbréf fulltrúanna frá:
L Stokkseyrardeild: Jóns Sturlaugs-
s°nar og Nikulásar Torfasonar.
2. Keflavíkurdeild: Valdimars Krist-
mundssonar og Jóhanns Ingvasonar.
3. Akranesdeild: Ó1 B. Björussonar,
Skapta Jónssonar og Kristm Tómassonar.
4. Um kjörbréf fulltrúanna frá Eyrar-
hakkadeild, þeirra Þorl. Guðmundssonar
og Jóns Helgasonar, hafði nefndin það
að athuga, að deildin hefði ekki greitt
skatt fyrir árið 1930, heldur 1929. Upp-
lýsti fulllrúinn (Þ. G.), að venja væri
þar að greiða eftir á. Samþykkti því
fjórðungsþingið kjörbréfið gilt.
Þar sem enginn fundur hafði orðið
haldinn í Grindavíkurdeild, en þó mætt
þaðan Tómas Snorrason, bar liann fram
yfirlýsingu, er heimilar samkv. lögum
deildarinnar, að formaður komi allstaðar
fram út á við fyrir deildarinnar hönd.—
Tillaga kom frá kjörbréfanefnd um að
taka kosninguna gilda i þetta sinn. Breyt-
ingartill. frá forseta Fiskifélagsins um að
Tómas Snorrason hafi málfrelsi, tillögu-
rétt og nefndarstarfarétt, var samþykkt.
Þá var tekið að ræða um hvort kjósa
skuli forseta í stað Ágústs Jónssonar, sem
verið hefur forseti mörg undanfarin ár.
Eftir miklar umræður var samþykkt
með 7 : 1 alkv., svo hljóðandi tillaga frá
Ólafi Björnssyni.
»Legg til að fjórðungsþingið kjósi nú
i upphafi þingsins starfsmenn sína á
þessu þingi, og gildi kosning þeirra þar
til næsta fjórðungsþing kemur saman«.
Kosnir voru : Forseti Ól. B. Björnsson
með 5 atkv. Varaforseti Skapti Jónsson
með 4 atkv.