Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 6

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 6
258 ÆGIR Ritari Þorleifur Guðmundsson með 5 atkv. Vararitari Jóhann Ingvason. Forseti tók þá til máls, og gat þess að rétt mundi vera, að kjósa 3 manna nefnd til að athuga og gera tiliögur um laga- breytingar, er mundu leiða af því að fjórð- ungarnir fengju nú sín sérstöku fjármál. Forseti Fiskifélags íslands, gafskýring- ar á því, hvernig fyrirkomulag væri á fjórðungsþingi Vestfirðinga, og lagði til að skipaðar væru 3 nefndir, er til væri vísað ýmsum málum er fyrir þinginu liggja. Var tillagan samþ. í e. hlj. Skip- aði forseti í nefndina þannig: 1. nefnd: Skapti Jónsson, Valdimar Kristmundssonog ÞorleifurGuðmundsson. 2. nefnd : Jón Sturlaugsson, Ivristmann Tómasson og Tómas Snorrason. 3. nefnd : Jóhann Ingvason, Jón Helga- son og Nikulás Torfason. Lagabreytingar: samþ. í e. hlj. að vísa því máli til 1. nefndar. Dagskrárnefnd: Till. frá Þorleifi Guð- mundssyni, um að kosnir séu 2 menn auk forseta, til að semja dagsluá fyrir þingið. Samþ. Kosnir voru : Jóhann Ing- vason og Tómas Snorrason. Fyrv. for- seti bað um orðið, og óskaði þingi þessu allra heilla og þakkaði 12 ára ánægju- legt samstarf. Forseti þakkaði starf hans og bað menn votta honum þakkir með því að standa upp. Var það gert. Næsta mál á dagskrá var um fyrir- komulag á meðferð fiskimálanna. Máls- hefjandi Forl. Guðmundsson. Taldi hann að nauðsynlegt væri að breyta fyrirkomulagi fiskimálanna, lagði til að vísa málinu tíl nefndar. — Auk framsögumanns, töluðu í málinu, forseti Fiskifél. íslands, Skapti Jónsson og Ól. B. Björnsson. Málinu vísað til 1. nefndar. Önnur mál, samkv. tillögum dagskrár- nefndar. 1. L e n d i n g a r b æt u r í Grindavík, vísað til 2 nefndar. 2. Bygging varnargarðsog dýpk- un í Skúmstaðasundi, vísað til 2 nefndar. 3. B r i m m e r k j a s t ö ð í Selvogi, vís- að 3. nefndar. 4. Breytingá lögum um dragnóta- veiði, visað til 1. nefndar. 5. Landhelgismál, visað til 3. n. 6. Fjárhagsáætlun fyrir fjórðung- inn, vísað til 1. n. 7. Fisksölusamlög, vísað til 1. n. 8. Samtrygging á mótorbátum, vísað til 3. nefndar. 9. Hraðfrystihús, vísað til 2. n. Fundi slitið. Laugardaginn 6. des. var fundursettur á sama stað kl. 9 árd. 1. Varnargarður á Eyrarbakka og dýpk- un Skúmstaðaóss. Framsögu.m. Tómas Snorrason. Auk hans töluðu í málinu Kristmann Tómasson. Svo hlj. tillögur voru bornar upp : a. Fjórðungsþ. Sunnlendingafjórðungs skorar á Fiskifélagið að sjá um að verkfræðingur verði sendur lil Eyr- arbakka á næsta sumri, til þess að athuga, á hvern hált hægt væri að fyrirbyggja, að höfnin þar eyðilegg- ist af sandframburði úr Ölfusá, og gera kostnaðaráætlun um verkið. b. að athuga og gera kostnaðaráætlun um endurbætur á Skúmstaðaós, svo að sú leið sé tryggð sjófarendum sem frekast er unnt. Samþ. með öll- um atkvæðum. 2. Breyting á lögum fjórðungsþinga. Framsögum. Þorl. Guðmundsson. Að loknum umræðum var svo hlj. till. borin upp. Fjórðungsþingið samþykkir að fela stjórn fjórðungsins, að annast um

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.