Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 28

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 28
280 ÆGIR Ábyrgð á ofhleðslu skipa. „Bord of Trade“ aðvarar. Það eru fleiri en skipstjórar, sem hegn- ingu sæta, sé hrugðið út af seltum regl- um um hleðslu skipa. Hið brezka verzlunarráðuneyti hefir fyrir skömmu sent umburðarbréf (Cir- kulære) til allra, er hlut eiga að máli, út af nýföllnum dómsúrskurði, er komst að þeirri niðurstöðu, að fleiri en skip- stjóri skuli sæta hegningu og greiða sekt- ir þegar skip er ofhlaðið, að svo miklu leyti, sem þeir hafa haft umsjón og á- byrgð á hleðslu þess. í fyrsta lagi er þessari aðvörun beint til stýrimanna skipa, sem oft hafa á hendi daglega umsjón og fleira í ijar- veru skipstjóra, og þvi næst til eigenda skipa og verkstjóra þeirra (Stevedore), sem umsjón hafa, er skip er fermt; lög- in geii einnig náð til þeirra. Brezkur sjóréttur álitur, að skipstjóri að öllu jöfnu og menn hans, séu því fremur mótfallnir, að skip þeirra sé of- hlaðið en hinu, og þeir mundu ekki leggja út i slíkt, væri útgerðin þar ekki að verki og heimtaði að skipið flytti meiri vörur en hleðslumerkið leyfir. í sambandi við þetta er bentá »Vestris«- slysið, þar sem sjórétturinn dæmdi fram- kvæmdarstjóra »Lamport og Holt« félags- ins, íulltrúa þess í Ameríku, marga um- sjónarmenn hleðslu og hafnarverði, í hærri sektir, en yfirmenn skipsins voru dæmdir í. Erlend skip, sem koma til brezkra hafna og eru ofhlaðin, eru háð brezkum lögum og skip, sem flytur t. d. timbur- farm á þilfari, fær enga undanþágu í brezkri höfn, þótt timbrið hafi drukkið i sig sjó, orðið þar af leiðandi þyngra og orsakað, að skipið ristir dýpra en lög á- kveða. Það eru skipaútgerðafélög, skipstjór- ar og stýrimenn, sem verða að vera á verði og samtaka um, að lög þessi verði haldin. »Politiken«, Söfartstidende, 16. nóv. 1930. Vitar og sjómerki. Á S a u ð á r k r ó k hafa 2 vörðnr verið reistar á eyrinni norðan við kauptúnið, og sýna þær legustaðinn á höfninni þar sem steína þeirra mætir innsiglingar- stefnunni: kirkjuturninn í vörðu (sem áður var grá, nú hvít) á holtinu þar fyrir ofan. Stefna innsiglingarlinunnar er227°, stefna legumerkjanna er 316°. — Neðri varðan stendur á malarkambinum og er hvít með láréttri rauðri rönd, og rauðri forstrendri toppplötu, hin- efri stendur ofar á eyrinni og er hvit með láréttri rauðri rönd og rauðri, þrihyrndri topp- plötu. 1 Haganesvík munu tvær innsigl- ingavörður og 2 leguvörður verða reistar. Innsiglingarvörðurnar bera saman í stefnu 135° og standa þær fyrir víkurbotninum vestan við verzlunarhúsin. Neðri varðan stendur á malarkanibinum, og verður hvít með lóðréttri rauðri rönd og rauðu ferstrendu loppmerki, 2V2 m. á hæð. Efri varðan verður um 1200 m. ofar, á mó- unum sunnan við vatnið, og verður hún hvít með ráréttri rauðri rönd, og rauðri þríhyrndri toppplötu, 3 m. á hæð. Legu- vörðurnar bera saman í stefnu 66°, og standa á bökkunum austanmegin í vik- inni, utan við kauptúnið. Neðri varðan hvít, með lóðréttri rauðri rönd, og rauðri kringlóttri toppplötu 2 m. á hæð. Á leg- unni, þar sem línurnar mætast, er 8 m. dýpi og sandbotn. Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson._____ rUkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.