Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 9

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 9
ÆGIR 201 ar á stjórn Fiskifélags íslands, að vinna að því, að Fiskifélag Islands og stjórn þe'ss, sé viðurkennd opin- ber ráðunautur Alþingis og rikis- stjórnar, í öllum þeim málum sem fiskimál snerta, yfirumsjón fiskimats- ins, fái beint samband við erindreka íslands í öðrum löndum, í fiski- málum. c. Að lög Fiskifélagsins og fjórðungs- þinganna verði endurskoðuð og sam- ræmd við væntanlega víkkun á starfs- sviði félagsins, svo sem með fjölgun fulltrúa á Fiskiþing o. fl. Samþykkt rneð öllum atkvæðum. 13. Fjárhagsáætlun fjórðungssambands Sunnlendingafjórðungs 1931. T e k j u r. Tillag frá Fiskifélagi íslands kr. 1000 00 kr. 1000 00 Gjöld: Kostnaður við fjórðungsþing kr. 250 00 Til næsta fjórðungsþings . kr. 700 00 Óviss gjöld.................— 50 00 kr. 1000 00 Áætlunin samþykkt með öllum atkv. 14. Kosning 2 aðalmanna og 2 vara- nianna til næsta Fiskiþings. Kosnir voru: Aðalmenn, Ólajur B. Björnsson með 8 atkv. og Jóhann Ingvason með 5 atkv, Varamenn, Skapti Jónsson með G at- kvæðum og Siqurjón Jónsson með 5 at- kvæðum. Ákveðið að halda næsta fjórðungsþing 1 Reykjavík. Ol. B. Björnsson. Jóhann Ingvason, vararitari. Kaup fiskimatsmanna. Það verður ekki um það deilt, að nauðsyn sé, að fram fari mat á fiski þeim, sem úr landi hér er fluttur, eink- um til aðalmarkaðslanda vorra. Fyrir því er fengin svo örugg reynzla, að ekki orkar tvímælis, og því ekki meiningín með línum þessum að athuga nokkuð þá hlið’ þess máls. En það er önnur hlið þess, sem hér verður að nokkru athuguð, og það er kaup þeirra manna, sem við mat og flokkun á fiski fást, út um land, undir- fiskimatsmannanna. Hér á Raufarhöfn og nærliggjandi plássum, sem ég þekki bezt til, hafa verið valdir til að vera fiskimatsmenn, menn sem hafa verið taldir, og eru, heiðarlegir og samvizkusamir verkamenn, en hafa auðvitað ekki verið neitt fróðari en al- mennt gerist, um fiskverkun, eða útlit fisks og meðferð. Peir hafa, er þeir hófu starfið, fengið ákveðnar reglur. frá hlutaðeigandi yfirfiskimatsmanni, að fara eftir við störf sín, og viðbætur við þær og breytingar árlega, ef því hefir verið að skifta. Til þess því að vera hæfur undirmatsmaður, þarf ekkert annað en heilbrigöa meðal skynsemi og samvizku- semi, sem íjöldi manna hefur til að bera, en ekkert nám, eða sérfræði, sem alltaf kostar peninga í tvöföldum skilningi, c. tima og peninga — og því ekki undar- legt þó störf þeirra manna, er miklu af slíku hafa orðið að kosta til starfhæfni sinnar, verði dýrari en almenn vinna, þar sem slíku er ekki til að dreifa. Undanfarin ár hafa fiskimatsmenn hér á Raufarhöfn, sem eru 2, útoefndir af yfirfiskimalsmanni Norðlendingafjórð- ungs, haft 1 kr. 75 a. í kaup um klukku- stund, er þeir hafa verið við mat, eða

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.