Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 11

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 11
ÆGIR 263 hafa unnið, áður og eftir, sem óbreyttir liðsmenn. En undir eins og þeir hafa tekið sér i hönd kvarðann, hefur verið tilskilið að fiskeigendur gildu þeim þetta ákveðna matsmannskaup, og á ábyrgð þeirra gagnvart matinu leikur þó allur vafi. Eg býst við að þetta hafi átt sér stað víðar en hér, enda ekki nema rétt og sjálfsagt þegar nauðsyn krefur, til að flýta fyrir verkinu. Mér finnst það liggja næst, að Fiski- félag Islands tæki þetta mál að sér, og hlutaðist til um að þetta verk værí unnið án þess að íþyngt væri til muna, eða ó- sanngjarnlega framleiðendum fisksins, og ég vil því hér með skora á það að gera eitthvað í því efni. Það er alltilfinnanlegt fyrir hinn nú þrautpýnda bátaútveg, einkum þar sem likt hagar til og hér, að húsrúm er lítið og fólk fátt, að þurfa að láta 2 jafndýra menn, sem kosta framleiðandann 40 kr. á dag, hanga yfir þvi að meta frá 100 til mest 200 pakka á dag. Það má enginn skilja mál mitt svo, að ég beint ætlist til, þrátt fyrir það, að fiskimatsmennirnir hafi alveg samakaup og aðrir verkamenn á hverjum stað. En það má á milli vera, þó ekki sé 100%> og þar yfir, (þetta miðað við hér á staðnum). Eg teldi mjög sanngjarnt, að kaup fiskimatsmanna miðaðist við kaup verka- manna á hverjum stað og tíma, en væri að eins vissum hundraðshluta hærra, t. d. 20—30°/o. Mér er það Ijóst að kaup verkamanna er mjög mismunandi i bæjum og kaup- túnum landsins, og fer þá venjulega a. k. eftir hversu dýrt er fyrir þá aðila, se® hér eiga hlut að máli, að lifa. En emmitt á þeim stöðum, sem verkalaun er hæzt, er verð líka hæzt á hér fram- ldddum vörum og hægast að koma þeim i verð. Þetta er aftur alveg öfugt í út- kjálkakauptúnum og verstöðum. Þar er að miklum mun ódýrara að lifa, en framleiðsluvörur verðlægri ogmikiðörð- ugra að koma þeim i verð. Aðaltilgangur minn með þessum línum er sá, að vekja umræður um þetta mál og umhugsun, þvi ég býst við að á fleiri stöðum en hér, sé þetta tilfinnanlegur útgjaldaliður fyrir fiskframleiðendur. Og ef vera mætti, að Fiskifélag Islands sæi sér fært að hrinda því til betri vegar. Raufarhöfn 20. nóv. 1930. Hólmsleinn Helgason. Kvartanir í líka átt og grein Hólm- steins Helgasonar ræðir um, hafa oftar heyrst úr Norðlendingafjórðungi, en varla svo orð sé á gerandi annarsstaðar á land- inu. Að kostnaður við mat er þar meiri en víðast annarsstaðar, stafar af því að nokkru leyti, að fiskurinn er ver búinn i hendur matsmanna þar en viða ann- arsstaðar. Á flestum stöðum sem ég þekki tíl, nema sumstaðar norðanlands, er vani að flokka fiskinn nokkuð inn i húsin af verkafólkinu, og er það gert svo ná- kvæmlega, að matsmennirnir þurfa ekki að mæla nema einstaka fisk, sem er á takmörkum þeirrar stærðar sem við er miðað, til þess að sannfæra sig um að samvizkusamlega sé mælt inn i húsin. Labra-verkaður fiskur alflattur sér 3U — fluttur sér. Aftur á móti er. sumstaðar svo illa búið i hendur matsmanna, að þeir verða að inna af hendi öll þessi verk sjálfir og er því ekki að furða þó að verkin gangi seint. Yfirfiskimatsmað- urinn ætti að leiðbeina mönnum á þessu sviði. Samkvæmt lögum 1922, mega fiski- matsmenn ekki vera i þjónustu kaup-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.