Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 18

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 18
270 ÆGIR Þá segir höf. að íslendingar hafi alveg hlaupið yfir þátlinn í veiðiskapnum að nota botnvörpur til fiskveiða á seglskip- um. Er Reykjavikurbarninu alveg ókun- ugt um tilraunir þær, sem Breiðfjörð kaupm. í Reykjavik gerði hér í þessa átt, á kútternum »Önnu Breiðfjörð«, sem hann keypti frá Englandi i þessu skyni. Ennfremur voru gei ðar nokkrar tilraunir með fiski á lóðum frá kúlterum, og voru þá notaðir bátar og róið út frá skipinu. Það er lítil afsökun fyrir mann, sem tekur sér fyrir hendur að skrifa »faglega« um fiskiveiðar íslendinga, og framþróun þá, sem orðið hefur á því sviði, að skjóta sér bak við hagskýrslurnar, jafn ófull- komnar og þær voru fram til ársins 1912. Og var þá útgerð Wathnes á Seyð- isfirði, Konráðs Hjálmarssonar á Mjóa- firði og P. J. Thorsteinsonar á Bíldu- dal með línugufuskipum, aðeinsdraum- ur, úr þvi þess er ekki getið i hagskýrslum ? Pað vil ég taka fram, að ég er Á. Þ. sammála um, að notkun vélaaflsins í þágu fiskiveiðanna hefur orðið okkur undirstaða að efnalegu sjálfstæði þjóðar- innar, en togaraútvegurinn er þar ekki einn um hituna. Pað er ekki hægt að ganga fram hjá þeirri stórmerku breyf- ingu, sem skapast hefur í skjóli mólor- vélarinnar, þegar farið var að nota hana í fiskibáta, en þar sem þessar tvær um- bætur á sviði fiskiveiðanna — gufubotn- vörpungarnir og mótorbátarnir — komu nærri samtímis, þá er ekki gott að greina þá tvo þætti algerlega í sundur, þegar athuga skal framfarirnar á sviði fiski- veiðanna síðasta aldarfjórðung. Illa held ég að hr. Á. Þ. gangi að fá nútíðarmenn lil að samsinna því, að fiskiver verði að »fiskverjum« i þágufalli fleirtölu, en því er hann að kljúfa orðið í sundur úr svari mínu, því að báðir helmingar þess, voru rangt beigðir hjá honum, og þó hann vitni í Fritzner því til sönnunar, að orðið »ver« verði að »verjum« í þágufalli fleirtölu, eða réttara sagt, hafi beygst þannig i fornmálinu, þá sannar það ekki, að sú beyging sé rétt nú, enda er það hvergi beygt þannig þar, sem ég þekki til á landinu. »Hugleiðingar forsetans um ísvarða fiskinn fara mjög í lika átt og ummæli greinar minnar« segir A. Þ. Eg held að þau fari einmitt í þveröfuga átt. Á. Þ. heldur því fram, að ekki sé hægt að flytja ísvarinn fisk á útlendan markað í öðrum skipum en veiðiskipum, sökum fjarlægðar, en bæði í svari mínu í 10. tbl. »Ægis« þ á. og í grein, sem ég skrif- aði í 4. tbl. »Ægis« 1927 með fyrirsögn- inni »Framtíðar fyrirkomulag fiskiveið- anna« hef ég bent á, að okkur skorlí mest á, að fá örar reglubundnar ferðir til Englands eða stærri markaðslandanna til þess að geta sent þangað ísvarinn fisk í kössum. Mér þykir leitt hve rúm »Ægis« er takmarkað, því margt er enn eítir óat- hugað í grein og svari hr. Á. Þ. K. B. Skýrsla nr. 3 til Fiskifélags íslands, frá erindrekan- um i Norðlendingafjórðungi 1930. Þess var getið í síðustu skýrslu minni, að þá væri kominn á land í umdæmi minu, nærl'ellt eins mikill fiskur ogstund- um endrarnær eftir alla vertiðina. Þessu olli hin afarkraftmilda fiskiganga í maí og júnímánuðum, en eftir það fór aflinn að verða mikið tregari, sérstaklega á mið- um Eyjafjarðar og Siglufjarðar og inn á

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.