Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 10

Ægir - 01.12.1930, Blaðsíða 10
262 ÆGIR staðið yfir útskipun fisks, og hefur oss fiskeigendum þótt það ærið nóg, þarsem kaup annara verkamanna við sömu vinnu, — fiskpökkun og útskipun — á sama tima, hefur verið frá 85 a. til 1 kr. á klukkustund. En nú í haust þegar á að fara að pakka saltfisk og pressufisk til útflutn- ings, tilkynna matsmennirnir að kaup þeirra hafi verið hækkað upp i 2kr. um kl.stund, frá 1. september þ. á., einmitt þegar fiskurinn er slórfallinn í verði og jafnvel illseljanlegur, og eru þetta að þvi leyti enn þyngri búsyfjar. Hvað til þessa hafi komið, er þeim matsmönnum hér, ókunnugt um, og er þvi ekki fyrir kröf- ur frá þeim fram komið. Yfirmaður þeirra á Akureyri hafði að eins lilkynt þeim þetta, og auðvitað létu mennirnir sér það vel líka, enda ekki hægt að ásaka það, og vissu sem var að ekki var hægt fram hjá þeim að ganga. Hvaða heimild er fyrir þessu, hefi ég því miður ekki haft tök á að fá upp- lýsingar um, þar sem hlutaðeigendur gátu ekkert um þetta sagt. En mér finnst með því allóþyrmilega og ómaklega kastað steini að þeim atvinnurekendum, er hér eiga hlut að máli, einkum smá- vélbáta-útveginum, ofan á alla þá dýitið, sem nú þjakar þann ómissandi atvinnu- rekstur. Því kaup þessara manna var áður a. m. k. nógu hátt, og reyndar of hátt, samanborið við aðra vinnu tilheyr- andi þesum atvinnurekstri. Þar er þó að öllu leyti boginn spentur til hins ítrasta. Eg geri nú ráð fyrir því að kauphæð þessi og hækkun, stafi af kröfum mats- manna, annarsstaðar, um hækkuð Iaun, og er það auðvitað í samræmi við það, sem allur verkalýður nú vinnur að, og grefur með þvi sína eigin gröf. Því slíkt hugsunarleysi um kröfur og eyðslu, mikils þorra sjórnanna og verkamanna, þó þeim sé að sumu leyti e. t. v. vorkunn, sem nú er orðið, leiðir óhjákvæmilega af sér hrun atvinnuvega og afkomu þjóðarinn- ar innan skamms. En slíkt skal ekki rökrætt hér. Höfuðrök þess socialistiska anda, sem þessari hér um ræddu kauphæð mun valda, munu þau, að störf þessara manna — fiskimatið — sé svo ábyrgðarmikið starf, og því verði m. a. að launa það betur en önnur almenn störf af svipuðu tagi. Þetta virðist þó ekki nema að litlu leyti rétt, þegar það er skoðað niður í kjölinn. Eg geri ekki ráð fyrir því, að þótt eitt- hváð reyndist athugavert við einhverja metna fisksendingu, svo að fjártjón hlytist af, bæði beint og óbeint, að það kæmi á bak matsmönnum þeim, er um þessa vöru hefðu fjallað, enda óviða sem slíkir menn eru svo efnum búnir að þeir gætu fjárhagslega staðið straum af því. Fjár- hagshallinn af slíku mundi því óhjá- kvæmilega koma niður á kaupanda eða seljanda vörunnar. En það er nokkurn veginn jafnvist, og harla eðlilegt, að slíkir menn, sem sekir kynnu að verða fundnir, um einhverja vangá viðvikjandi starfi sínu, yrði sagt upp starfinu og aðrir til fengnir. Mér virðist því ábyrgð þessi ekki vera nema sú hin sama ábyrgð sem hvílir á hverj- um starfsmanni, við hvaða starf sem er, innan allra mannfélaga. Ábyrgðin fynr sinni eigin persónu og afkomu, til að halda starfi sínu og heiðri. t*að hefur oftar en einu sinni komið fyiir hér, að í tlýti hefur þurft að meta og pakka fisk til útílutnings. Hafa þá matsmenn vorir skift sér, svo bægt vsen að vinna á tveim stöðum samtímis, og hafa þá tekið sér til hjálpar sinn mann- inn hvor, með leyfi yfirfiskimatsmanns, úr hópi þeirra manna, sem að þessu

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.