Ægir - 01.12.1930, Page 13
ÆGIR
265
selt nýtt af fiski á öllum þessum ver-
stöðum veit ég ekki greinilega enn þá,
mun reyna að fá ítarlegar upplýsingar
um það og taka með á næstu skýrslu.
Frystihús fyrir síld eru ekki til á þess-
um stöðum, nema á Skálum. Þar eru 3
frystihús, 2 af þeim hafa starfað i sumar.
Hér á fjörðunum frá Seyðisfirði til Fá-
skrúðsfjarðar hefur aflast yfir þennan
ársijórðung, rúm 12000 skpd. í fyrra um
9700 skpd á sama tíma. Verð á saltfiski
lækkaði þegar leið á sumarið, svo að á
þessu tímabili mun verðið hafa verið
28—30 aura fyrir kílóið af stórfiski og
25—27 aura kílóið af smáfiski. Þurfisk-
salan gekk mjög dræmt og verðið heldur
lægra en í fyrra. Spánarmetinn stórfiskur
var seldur fob á 110—112 kr. skpd. nr.
1, og fyrsta flokks Labri á 73—75 kr.
skpd.
Síldveiði var mun meiri hér eystra
á þessu liðna sumri en í fyrra. Sildveið-
ina hér i v.or hefi ég minnst á í síðustu
skýrslu minni. Sú veiði var svo mikið
nieiri en mörg undanfarin ár, sérstaklega
hér á Seyðisfirði. Svo var mikið meiri
sild veidd hér í sumar en í fyrra, sem
fryst var til beitu, sem bezt sézt á skýrslu
þeirri yfir frosthús hér í fjórðungnum,
sem ég sendi Fiskifélaginu. Mér telst til
eftir skýrslu þessari, sem ég hefi fengið
hjá hlutaðeigendum frystihúsanna, að
ái'ið 1929 hafi verið fryst í þessum hús-
u*n síld til beilu, um 2700 tunnur eða
270 þúsund kiló. En í ár hafa þessi hús
fryst 4450 tunnur eða 445000 kiló af
heitusíld, um 1750 tn. meira en i fyrra.
^essi síld í ár er öll veidd af skipum og
hátum hér úr fjórðungnum. Auk þess
Var saltað og sérverkað hér á Austur-
i^ndi i sumar 10922 tn. af síld. 1 fyrra
saltað um 8400 tn. Það hefur því verið
saltað 2522 tn. meira í sumar en í fyrra.
Sildveiði hér eystra heíur því verið rúm-
ar 4270 tn. meiri í ár en í fyrra. Síld
var bæði mjög mikil og stóð lengi hér
fyrir Austurlandi í ár, og það er vafa-
laust, að hefði verið hér á Seyðisfirði
síldarbræðslustöð, þá hefðu Austfirðingar
og aðrir stundað hér meira sildveiði en
gert var, sem um leið hefði bætt afkomu
manna að miklum mun.
Seyðisfirði, 20. nóv. 1930.
Herm. Porsteinsson.
Skýrsla
um aflabrögð o. fl. í Grímsey
ár 1930.
Það hefir orðið talsverð breyting á út-
vegnum hjá okkur, eins og víðar, þar
sem nú ganga 7 trillubátar til íiskjar, í
fyrra 4 og i hitt eð fyrra enginn. I sum-
ar gengu á veiðar 1 mótorbátur 4 smál.,
7 trillubátar og 4 árab. I fyrra 1 mótor-
bátur, 4 trillu (þar af 2 færeyskir) og
11 árabátar. Á þessu ári varð aflinn 785
skpd. (þur), í fyrra 775. Yfirleitt má segja,
að afli væri langsóttur nú og ógæftir
meiri en i íyrra fyrrir árabáta, svo vitan-
lega hefði aflinn orðið minni en raun
varð á, ef um árabáta eina hefði verið
að gera. Tvær »trillur« öfluðu sæmilega,
svo og mótorbáturinn, en smærri »trill-
ur« og árabátarnir sáralítið, enda var lít-
ill fiskur nærri eyjunni á vanalegum ára-
bátamiðum.
Sífeld norðanátt, þokur og u'gning
drógu og mjög úr sjósókn og aflafeng.
Seint i feþr. byrjaði að verða fisks vart
til muna; þó töldu fiskimenn fisk þann,
sem þá aflaðist »Eftirlegufisk«, þótt hvít-
ur væri og all-vænn. í marz og april
var oft góður aíli er á sjó gaf. Fiskurinn
t