Ægir - 01.12.1930, Side 20
272
ÆGIR
en engin manntjón eða meiðsli voru
þessum ströndum samfara, sem betur
fer.
I síðustu skýrslu gerði ég grein fyrir
útgerðarmagni í vesturhluta umdæmis
míns og vil nú skýra frá þvi í hinum
hlutanum, en þó getur það aldrei orðið
alveg nákvæmt, meðan svo háttar til,
sem nú er, að sumir bátar róa að eins
framan af vertíð, aðrir með höppum og
glöppum og enn aðrir og þar á meðal
sumir stærri bátarnir, stunda bæði þorsk-
veiðar og sildveiðar, stundum á víxl, eftir
þvi sem ástæður eru til á hverjum tima.
Eftir því sem skýrslur úr verstöðvunum
herma, og ég hefi komist næst, stund-
uðu þorskveiðar, er flest var, skip og
bátar sem hér segir, auk þess er talið
var á síðustu skýrslu.
Frá Siglufirði: 9 vélskip, 37 vélbátar
undir 12 tonna stærð og 10 opnir vél-
bátar. Eru þá talin aðkomuskip og bátar.
Samanlagður afli þeirra til nóvemberloka
er talinn að vera 17,631 skpd. fiskjar.
Aulc þessa fóru 4 vélbátar til Akureyrar
með 100 skpd. fiskjar til aðgerðar. og er
sá fiskur talinn þar.
Frá Héðinsfirði gengu 3 opnir vélbátar,
en tveir þeirra stunduðu veiði mjög stop-
ult, vegna bilana, og varð því aflinn að
eins 244 skpd. samtals.
Frá Ólafsfirði gengu : 1 vélbátur yfir
12 lonn, 17 vélbátar undir 12 tonn og
18 opnir vélbátar, en sumt af bátunum
fór á sildveiðar, er þær byrjuðu, og opnu
bátarnir gengu ekki að staðaldri allir.
Aflinn samtals 6179 skpd.
Frá Dalvik og Upsaströnd gengu 9
vélbátar, allir undir 12 tonna og 4 opnir
vélbátar. Stærri bátarnir stunduðu þó
sumir síldveiðar um tíma. Aflinn varð
samlals 2645 skpd.
Frá Hrisey gengu 19 vélbátar undir 12
tonn og 4 opnir vélbálar. Síldveiðar stund-
uðu nokkrir bátanna að einhverju leyti.
Þorskaflnn varð 4893 skpd.
Af Árskógsströnd gengu samtals 11
opnir vélbátar og 5 árabátar, en þó ekki
að staðaldri. Aflinn þar samanlagður varð
575 skpd.
Frá Hjalteyri og grendinni gengu að
einhverju leyti 5 opnir vélbátar, en sumir
að eins lítinn tíma, eða þá að eins í í-
gripum, og seldu fiskinn að mestu nýjan
til Akureyrar og í sveitina. Talið er að
saltað hafi verið sem verzlunarvara 45
skpd.
Frá Akureyri gengu 7 vélskip til þorsk-
veiða, að meira eða minna leyti, en að
eins 3 af þeim lögðu upp megin aflann
á Akureyri, hin að mestu sunnanlands
og á Yestfjörðum. Vélbátar um og undir
12 tonna stærð 8—10 talsins, lögðu upp
á Akureyri afla úr fáum róðrum í vor,
en héldu að öðru leyti alveg til á Siglu-
firði, Hrísey og 2 smábátar á Húsavík,
enda er afli þeirra talinn þar. Samtals
er aflnn í salt talinn hér 1214 skpd., þar
með talin 71 skpd. keypt af Færeyingum
og 100 skpd. flutt frá Siglufirði, eins og
áður er getið. Nokkrir opnir vélbátar
gengu einnig héðan til fiskjar, en þeir
seldu allt sitt til bæjarbúa og koma því
ekki til greina bér.
Úr Grýtubakkahreppi gengu alls 9 vél-
bátar, allir undir 12 tonna og 2 opnir
vélbátar, að mestu leyti. Afli þeirra allra
varð 2666 skpd.
Úr Flatey gengu 1 vélbátur undir 12
tonn, 10 opnir vélbátar og 2 árabátar.
Aflinn samtals 908 skpd.
Frá Húsavik og af Tjörnesi gengu 10
vélbátar undir 12 tonna og 10 opnir vél-
bátar og auk þess 3—4 árabátar nú í
haust, að einhverju leyti. Samanlagður
afli þar 5766 skpd.
Frá Raufarhöfn og Sléttu gengu 5 vél-
bátar, allir minni en 12 tonn og 5 opnir